Pétur og Elísabet hjón í fjögur ár

Pétur Freyr Pétursson og Elísabet Helgadóttir, eigendur hönnunarverslunarinnar Vest, hafa …
Pétur Freyr Pétursson og Elísabet Helgadóttir, eigendur hönnunarverslunarinnar Vest, hafa verið gift í fjögur ár. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Pétur Freyr Pétursson og Elísabet Helgadóttir, eigendur hönnunarverslunarinnar Vest, fagna í dag fjögurra ára brúðkaupsafmæli sínu. Hjónin gengu í það heilaga hinn 19. júlí 2019.

Elísabet birti fallega færslu á Instagram í tilefni dagsins með yfirskriftinni: „19.07.19. 4 ár gift og 9 ár saman. Fulla ferð áfram í gegnum lífið með þér og aldrei logn. Ég vel þig alla daga, alltaf.“ Með færslunni birti hún glæsilega mynd af brúðhjónunum. 

Pétur og Elísabet eru með einstakt auga fyrir fallegri hönnun, en fyrr á árinu settu þau 253 fm endaraðhús sitt við Reynihlíð á sölu. Eignin er sannkölluð hönnunarparadís sem hjónin hafa innréttað á glæsilegan máta. 

Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál