Íslandsvinur gifti sig í Ungverjalandi

Dylan Sprouse og Barbara Palvin eru hjón.
Dylan Sprouse og Barbara Palvin eru hjón. Samsett mynd

Íslandsvinurinn og Disney-stjarnan, Dylan Sprouse, kvæntist fyrirsætunni Barböru Palvin í leynilegri athöfn yfir helgina. Brúðkaupið fór fram í lítilli kirkju í heimalandi Palvin, Ungverjalandi. 

Myndir frá athöfninni birtust á samfélagsmiðlinum Twitter, en þar sjást Sprouse og Palvin ganga saman niður kirkjugólfið eftir að hafa játast hvort öðru. Á myndinni sést einnig glitta í tvíburabróður Sprouse, Cole Sprouse, en hann sinnti hlutverki svaramanns. 

Sprouse bað fyrirsætunnar í mars á þessu ári eftir fimm ára samband, en leikarinn sendi Palvin einkaskilaboð á samfélagsmiðlum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál