„Þegar ég var átta ára hvarf mamma alveg og ég sá hana ekki í mörg ár“

Talía Mjöll Guðjónsdóttir er gestur Tinnu Barkardóttur í hlaðvarpsþættinum Sterk …
Talía Mjöll Guðjónsdóttir er gestur Tinnu Barkardóttur í hlaðvarpsþættinum Sterk saman.

Talía Mjöll Guðjónsdóttir hefur upplifað margt á sinni ævi þótt hún sé bara tvítug. Hún er gestur Tinnu Barkardóttur í hlaðvarpsþættinum Sterk saman. Hún er uppkomið barn alkahólista og vissi strax sem lítið barn að mamma hennar væri veik. 

„Mamma og pabbi skildu þegar ég var tveggja ára og svo byrjaði mamma með miklum ofbeldismanni sem ég þoldi ekki,“ segir Talía. Hún útskýrir að mamma hennar hafi reynt að fela hegðun kærastans fyrir sér og bræðrum hennar. Talía vissi samt upp á hár hvað var í gangi og segir að kærastinn hafi ekki bara beitt líkamlegu ofbeldi heldur einnig andlegu. 

„Hann var mikill ofbeldismaður og kastaði henni til dæmis fram af svölunum,“ segir Talía.

Hefði getað dáið

Talía rifjar upp sögu af kærasta móðurinnar og segist vera heppin að lifa mótorhjólaferð af. 

„Hann átti mörg mótorhjól og við áttum svona mótorhjól fyrir börn. Þegar ég var fimm ára tók hann innsiglið af og ég fór allt of hratt og hjálmurinn fór í tvennt. Ég hefði getað dáið,“ segir hún en upp úr sambandi móður hennar og kærastans slitnaði þegar hann beitti bróður Talíu ofbeldi. Þá fékk móðir hennar nóg og sagði bless við kauða. 

Talía segir frá því að mamma hennar hafi alltaf reynt að gera sitt besta og sett börnin í fyrsta sæti. Hún kom börnunum til dæmis alltaf fyrir annarsstaðar þegar hún var í neyslu. 

„Hún var skynsöm að því leiti,“ segir Talía.  

„Þegar ég var átta ára þá hvarf mamma alveg og ég sá hana ekki í mörg ár, átta sirka, og heyrði ekkert í henni heldur,“ segir Talía en á þeim tíma bjó hún hjá föður sínum og stjúpmóður. Sambúðin hjá þeim gekk hinsvegar ekki vel. Talíu og stjúpmóður hennar kom illa saman. 

„Ég var frá unga aldri hjá sálfræðingum og skildi vel að mamma væri veik. Ég var aldrei reið út í hana en auðvitað saknaði ég hennar og var hrædd,“ segir Talía og nefnir að stjúpmóðir hennar hafi beitt hana andlegu ofbeldi sem síðar varð líkamlegt.

„Frá því ég var níu ára sagði hún mér að hún væru bara að bíða eftir símtali um að mamma væri dáin og það gerði mig hrædda. Ég var mikil mömmustelpa. Hún setti stanslaust út á útlit mitt, sagði mér að ég væri feit og vigtaði mig,“ segir Talía. 

„Stjúpmamma mín skipar mér að klæða mig úr úti og ég spyr hvort ég megi þá fá handklæði en hún neitar og lokar hurðinni. Þarna triggerast það sem ég hélt alltaf að hafi verið gamall og vondur draumur en ég skelf eins og hrísla og græt og græt. Pabbi kemur og verður mjög reiður því hann hafði sagt henni frá þessu áfalli sem ég hafði orðið fyrir fimm ára gömul og lokað á,“ segir Talía sem varð fyrir misnotkun þegar hún var lítil.

„Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð og það kemur maður til dyra og tekur mig inn til sín og misnotar mig kynferðislega. Hann segir að þetta sé leyndarmál. Ég fór til vinkonu minnar og spyr hvort ég megi segja henni leyndarmál, hún segir mömmu sinni sem hringdi í foreldra mína.“

Þarna í þessum aðstæðum var eitthvað sem triggeraði þetta gamla áfall sem Talía hafði í öll þessi ár haldið að sig hafi dreymt því það var ekki rætt.

„Kannski var bara gott að þetta kom upp því þá gat ég farið að vinna úr því. Þetta var búið að trufla svefninn minn alltaf og ég var greind með þunglyndi og áfallastreitu.“

16 ára þegar mamma varð edrú

Móðir Talíu varð svo edrú þegar hún var um 16 ára gömul og fékk hún að velja sjálf hvort og þá hvernig samskipti hún myndi vilja hafa á milli sín og móður sinnar. 

„Ég vildi hitta hana en í fyrsta skipti hittumst við heima hjá vinkonu hennar sem við þekkjum líka svo það væri auðveldara. Mér finnst þetta miklu erfiðara heldur en bræðrum mínum en mig langar svo að geta bara hleypt henni að mér. Hún hefur bara misst af svo miklu. Við erum að reyna að kynnast upp á nýtt en hún er æðisleg og hún gefur mér allan tímann sem ég þarf.“

Aðspurð hvort hún sé ennþá hrædd um mömmu sína segist hún vera það.

„Ég er lítið hrædd en ég er samt smá hrædd að opna alveg og svo fer hún kannski aftur, því hún velur það ekki en nei ég held ekki. Við verðum örugglega aldrei eins og móðir og dóttir en við getum verið bestu vinkonur,“ segir Talía. 

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál