Leitar annað eftir kynlífi en vill ekki fara frá manninum

Unsplash/Kyle Broad

Kona er í ástríku sambandi með maka sínum. Hún fær þó ekki allt það kynferðislega út úr því sem hún vill og hefur því leitað á önnur mið til að fullnægja því. Hún er ekki viss um hvort hún eigi að fara frá maka sínum, því fyrir utan þetta hefur hún enga ástæðu til þess að fara frá honum. Leitar hún því ráða hjá sérfræðingi.

Ég hef verið í ástríku sambandi í þrjú ár. Þegar ég hitti maka minn fyrst sagði ég nánum vini að ég héldi að ég hefði hitt ástina í lífi mínu. Þessi hamslausa hrifning í upphafi sambandsins leiddi til raunsærrar ástúðar. Hann er klár, myndarlegur og umhyggjusamur og ég nýt tíma okkar saman og finn fyrir öryggi og trausti. 

Í upphafi var kynlífið mjög skemmtilegt og reglulegt. Núna hefur það róast aðeins en við stundum samt kynlíf einu sinni í viku. Málið er að mér líkar óhefðbundið kynlíf en ekki honum. Við höfum rætt þetta og honum líður ekki vel með að gera það sem ég hef gaman af. Upphaflega hélt ég að þetta yrði allt í lagi, í öllum samböndum eru gerðar málamiðlanir. Eftir því sem tíminn hefur liðið er ég hins vegar ekki viss um að þetta sé eitthvað sem ég get sleppt. Hann hefur tekið skýrt fram að hann sé ekki til í opið samband. 

Ég er með nafnlausan prófíl á stefnumótasíðu fyrir fólk sem aðhyllist óhefðbundnu kynlífi. Ég byrjaði að tala við einstakling sem deilir áhugamálum mínum. Við hittumst og kynlífið okkar var mjög ánægjulegt, svo ánægjulegt að ég hef aldrei upplifað álíka áður. Núna höfum við hist reglulega í sex mánuði. Hvorki maki minn né bólfélagi minn vita af hvor öðrum.  

Ætti ég að fara frá maka mínum vegna ólíkra langana okkar þegar kemur að kynlífi? Ætti ég að gefa upp þessar óhefðbundnar þrár mínar fyrir samband sem ég hef enga aðra ástæðu til þess að slíta? 

Svar sérfræðingsins:

Það er allt í lagi að þú getir ekki og viljir ekki lifa án þessa hluta kynverundar þinnar. Það er líka í góðu lagi að ákveða að samband gangi ekki upp vegna þess. Við megum slíta samböndum ef við þurfum að gefa eitthvað upp á bátinn til þess að viðhalda því. Þetta á ekki bara við þegar um kynferðislega hluti er að ræða. Einstaklingur getur slitið sambandi ef hann vill börn en makinn ekki, ef hann vill búa í ákveðnu landi en makinn ekki, og svo framvegis. Að viðhalda sambandi er ekki bara spurning um hvort þér líki við þessa manneskju. Þetta er spurning um hvort þig getið virkilega samtvinnað líf ykkar. 

Það er samt aldrei í lagi að blekkja maka þinn til að vera í sambandi sem hann heldur að sé öðruvísi en það er. Þú segir að maki þinn hafi gefið það skýrt fram að hann vill ekki vera í opnu sambandi. Hann er nú þegar í slíku, án þess þó að vita af því. Með því að halda sambandi þínu gangandi með hinum aðilanum heldur makanum þínum í fyrirkomulagi sem þú veist að hann er ekki sáttur við. 

Makinn þinn mun færa fórnir til að halda sambandinu gangandi. Þær fórnir geta verið frábrugðnar þeim sem þú færir. Það er þó ekki óeðlilegt að breyta einhverju í lífi okkar þegar við erum í sambandi með öðrum einstaklingi. Í þessu tilfelli gerir hann töluverðar breytingar á lífi sínu til að eiga í ákveðnu sambandi við þig, sambandi sem er í raun með öðrum hætti en hann heldur. 

Það er ekki eigingirni að ákveða að þú veljir að fullnægja þessum hluta af sjálfri þér. Fyrir marga er kynverund ekki frjálsleg viðbót við gott líf, heldur er hún jafn mikilvægur þáttur í vellíðan eins og vinir, hreyfing eða tími með fjölskyldunni. Það að þetta sé kallað óhefðbundið kynlíf og sé hluti af einhvers konar undirmenningu þýðir ekki að þú þurfir að útiloka það úr lífi þínu. Hins vegar verður það aldrei það besta í stöðunni að halda áfram að blekkja einhvern sem þú elskar og berð virðingu fyrir. Fyrir utan hina augljósu ósanngirni gagnvart makanum þínum, þá færð þú í raun ekki það sem þú vilt út úr þessu. Þú vilt ekki halda þessum hluta af sjálfri þér aðskildum frá restinni af lífi þínu að eilífu.  

Þú sagðir að þetta væri eina ástæðan fyrir því að þú ættir að fara frá honum. Þú hefur fulla ástæðu til þess, frá mínum bæjardyrum séð. Ef þú ákveður að viðhalda sambandinu mun makinn þinn halda áfram að vera í sambandi fullu af blekkingum, í stað ástríka sambandsins sem hann telur að sé bara á milli þín og hans. Að halda sambandinu áfram snýst ekki eingöngu um það hvað þú vilt. 

Guardian 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál