Skilnaður er einn af stærstu álagsþáttunum

mbl.is/ThinkstockPhotos

„Skilnaður er svo miklu meira en orðið gefur til kynna. Skilnaður er einn stærsti álagsþáttur sem getur komið upp í lífi einstaklinga og fylgir þessu ferli mikil sorg,“ segir Þórey Kristín Þórisdóttir, klínískur sálfræðingur og markþjálfi, en hún skrifar reglulega pistla á Smartland.

Þórey Kristín Þórisdóttir klínískur sálfræðingur og markþjálfi.
Þórey Kristín Þórisdóttir klínískur sálfræðingur og markþjálfi.

Fyrir utan að syrgja maka er einnig sorg við tilhugsunina um framtíð án hans. Enn fremur blossa upp tilfinningar líkt og skömm og eftirsjá, en slíkar tilfinninga koma einnig upp í sorgarferli. Reiði yfir því að vera yfirgefinn af maka sínum og eftirsjá vegna liðinna atburða. Skömm er einnig hliðarverkun, skömm yfir því að aðilinn hefur ákveðið að fara og skilnaður er yfirvofandi. Jafnvel í hjónaböndum sem hafa augljóslega verið að flosna upp lengi og veita litla ánægju.

Hjónaband er eining eða teymi sem gerir plön um framtíðina og er ávallt að vinna að einhverjum sameiginlegum markmiðum, hvort sem um ræðir barnauppeldi, búsetu eða næsta frí. Skilnaður hristir upp í allri þessari tilveru. Einstaklingum líður oft og tíðum eins og þeir þurfi að byrja upp á nýtt. Ef flutningar bætast við skilnaðinn, eins og algengt er, fylgir því enn meiri streita. Þegar börn eru í spilinu er það líka óhjákvæmilegur álagsþáttur og mjög tilfinningahlaðinn.

Rannsóknir hafa sýnt að á milli 30% og 40% einstaklinga sem ganga í gegnum skilnað upplifa kvíða eða þunglyndi. Skilnaður hefur nefnilega í för með sér svo marga og stóra óvissuþætti varðandi ekki bara framtíðina heldur einnig nútíðina. Þetta leiðir oft til ótta sem þróast svo yfir í kvíða.

Það er svo mikilvægt að aðstandendur og vinir sýni stuðning. Í stað þess að velta vöngum yfir orsökum og ástæðum þurfa einstaklingar sem eru að ganga í gegnum skilnað á aðstoð, alúð og nærgætni að halda frá fólki sínu. Freistandi er að fara yfir allar mögulegar ástæður af hverju skilnaður er að eiga sér stað, en það er hugsanlega ekki besti tíminn fyrir þann sem stendur í miðju skilnaðarferlinu. Að vera til staðar sem bakland og tengslanet er hugsanlega það verðmætasta sem aðstandendur geta gefið af sér fyrir þá sem standa í skilnaði.

Félagslegi þátturinn spilar nefnilega stórt hlutverk í vellíðan einstaklinga. Þarna koma miðaldra karlmenn oft verr út úr skilnaði en konur vegna þess að þeir eru ekki eins duglegir og konur að ræða um hlutina. Konur halla sér oft upp að vinkonum til að ræða um hlutina og getur það oft og tíðum dregið úr kvíða og þunglyndi. Ennfremur hafa kannanir sýnt að konur eru almennt duglegri að leita sér hjálpar frá bæði vinum og fagmönnum þegar andleg vanlíðan bærir á sér. Karlmenn þurfa ekki síður á aðstoð að halda en sækja einfaldlega minna í hana og það er vandamál í sjálfu sér.

Skilnaður er ekki léttvægur og ber að taka alvarlega. Hann veldur miklu tilfinningalegu álagi sem þarf að vinna úr, á einn eða annan hátt, með aðstoð vina eða annarra. Stress, kvíði og þunglyndi geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér ef slíkt er hunsað.

Fyrir aðila sem eru að ganga í gegnum skilnað þá mæli ég með að leita sér hjálpar, annað hvort hjá aðstandendum eða fagaðila. Ef þú þekkir einhvern sem er á þessari vegferð hvet ég þig til að athuga hvernig þú getur verið til staðar fyrir viðkomandi. Það skiptir sköpum.

Fyrir fyrirspurnnir eða tímabókanir er hægt að hafa samband HÉR

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál