Fólk á jafn misjafnar sögur af því hvernig það missti meydóminn eða sveindóminn og það er margt, og það sama á við um stjörnurnar í Hollywood. Eins og Men's Health rifjaði upp voru fyrstu skipin hjá stjörnunum allt frá því að vera frábær yfir í það að vera hræðileg.
Dwayne Johnson
Johnson eða The Rock eins og leikarinn er oft kallaður greindi frá því í viðtali að hann hefði misst sveindóminn í almenningsgarði. Atvikið endaði ekki vel enda kom löggan að honum og kærustu hans þar sem lögreglumennirnir héldu að væri verið að ráðast á hana. „Þetta var algjör martröð. Sumar sögur er fallegar en mín var það ekki,“ sagði leikarinn.
Daniel Radcliffe
HarryPotter-leikarinn segir að fyrsta skiptið hans hafi verið gott og segir það hafa verið með manneskju sem hann þekkti mjög vel. Þrátt fyrir góða upplifun í fyrsta skiptið segir hann að hann hafi stundað mun betra kynlíf síðan þá.
Brooke Shields
Leikkonan missti meydóminn með ofurmenninu Dean Cain, þegar hún var 22 ára. Shields segir að hún hefði misst meydóminn fyrr ef hún hefði byrjað að elska sjálfa sig fyrr og sér hún eftir því.
Katy Perry
Söngkonan greindi frá því í viðtali að hún hefði misst meydóminn þegar hún var 16 ára í framsæti á Volvo við plötuna Grace með Jeff Buckley. „Ég elska þessa plötu svo mikið,“ sagði Perry.
Joe Jonas
Tónlistarmaðurinn missti sveindóminn tvítugur en hann beið eftir réttu manneskjunni og segist vera ánægður með það.
Ashton Kutcher
Leikarinn missti sveindóminn 15 ára úti í skógi með stelpu sem hann þekkti ekki en vinir hans höfðu látið þau hittast. Athöfnin entist ekki meira en tvær sekúndur og segir Kutcher það hafa verið mjög vandræðalegt.
Macaulay Culkin
Barnastjarnan missti sveindóminn 15 ára og segir það hafa verið sérstakt. „Það var ekki ógeðslegt eða skrítið. Við skipulögðum það,“ sagði Culkin en viðurkennir þó að hafa hugsað mér sér hvort hann væri að gera þetta rétt. Á meðan hlustuðu þau á Bítlana.
Anna Faris
Þegar leikkonan var 17 ára sagði hún þáverandi kærasta sínum að hún vildi missa meydóminn í hádegishléi í skólanum en það mátti fara heim í hádeginu. „Svo það er það sem við gerðum. Og það var hræðilegt,“ sagði Faris.
Jessica Alba
Leikkonan missti meydóminn með fyrrverandi unnusta sínum en þá var hún 18 ára. Hún segist hafa viljað vera viss um að vera ástfangin af þeim sem hún svæfi fyrst hjá, sérstaklega í ljósi þess að fyrsta skiptið var ömurlegt hjá mörgum sem hún þekkti.
Celine Dion
Missti meydóminn tvítug og var það kvöldið sem hún vann Eurovision, 30 apríl 1988. Maðurinn var René Angélil sem varð síðar eiginmaður hennar þrátt fyrir 26 ára aldursmun.
Lena Dunham
Girls-stjarnan missti meydóminn í háskóla. „Ég sagði honum ekki að ég væri hrein mey, bara að ég hefði ekki gert það mjög mikið,“ sagði Dunham. Hún segir fyrsta skiptið hafi verið sárara en hún hefði haldið en á öðruvísi hátt.