Victoria's Secret-fyrirsætan Alessandra Ambrosio prýðir forsíðu nýjustu útgáfu hönnunartímaritsins Architectural Digest. Að þessu sinni er það heimili fyrirsætunnar í Kaliforníu sem er í aðalhlutverki en ekki líkami hennar.
Ambrasio sem er frá Brasilíu lýsir stílnum á heimilinu eins og brasilískur bóhó-stíll hafi hitt rokk frá Kaliforníu en stíllinn er mjöf afslappaður. „Martyn kom með mikið af litum, áferð og líf í verkefnið,“ segir hún um innanhússhönnuðinn sinn.
Hún segist elska framandi staði og sést það á skemmtilegum ljósakrónum, listaverkum og smámunum sem setja svip á heimilið. Allt er síðan mjög barnvænt en Ambrosio býr í húsinu ásamt tveimur börnum sínum.
Hér má sjá allar myndirnar.