Leikarinn Ben Affleck hefur sett glæsihýsi sitt í Georgíu á sölu. Húsið er ekki fyrir hvern sem er en 8,9 milljónir dollarar eru settar á húsið eða rúmar 940 milljónir. Húsið er reyndar mjög stórt og í rauninni það stórt að það er kallað stóra húsið.
Variety greinir frá því að Affleck hafi keypt húsið þegar hann átti í sambandi við söng- og leikkonuna Jennifer Lopez. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og Affleck bæði búin að kvænast, eignast börn og skilja síðan þá.
Húsið er staðsett á eyju sem enginn nema íbúar hennar hafa leyfi til að fara þangað eða fólk með leyfi frá íbúum hennar. Á eyjunni er meðal annars hægt að finna gólfvöll og glæsileg hús eins og hús Afflecks.