Skilja símana eftir heima þegar farið er í frí

Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir og Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son prýða forsíðu Heilsublaðs …
Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir og Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son prýða forsíðu Heilsublaðs Morgunblaðsins. mbl.is/Arnþór Birkisson

Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir einkaþjálfari og Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son áhrifavaldur kynntust fyrst í World Class fyrir nokkrum árum. Ástin bankaði upp á fyrir alvöru fyrir nýlega en henni fylgdi sömuleiðis óumbeðin athygli sem þau takast á við saman. Þau prýða forsíðu Heilsublaðs Morgunblaðsins sem kom út í dag. 

Í viðtalinu tala Hafdís og Kristján um heilsuna, ástina og hvernig þau kynntust. En hvað skyldu þau gera til þess að hlaða batteríin?

„Við fórum mikið á húsbíl bara við tvö þó það er ekki nema klukkutíma út úr bænum. Við förum til að kúpla okkur aðeins út og tökum ekki símana með. Við erum með leynisíma sem strákarnir eru bara með númerið í ef eitthvað er, fjölskyldan getur alltaf náð í okkur,“ segir Hafdís.

Er það ekki erfitt?

„Því fylgir smá rasssviti til að byrja með en venst hægt og rólega. Við erum líka komin með þá reglu að ef við förum til útlanda eða í frí þá skiljum við símann eftir heima. Þeir eru alveg takmarkaðir fyrir utan kannski myndavélina. Við viljum vera saman þegar við erum saman,“ segir Kristján

Stefna út

„Við erum að stefna á að flytja út. Á næsta ári þá er markmiðið okkar að vera komin út,“ segir Hafdís þegar þau eru spurð hvernig framtíðin lítur út. Þau horfa annað hvort til Danmerkur eða Ítalíu.

Af hverju?

„Það eru miklu fleiri tækifæri af því sem við viljum gera,“ segir Kristján. 

Hugmyndin um að komast í burtu frá áreitinu á Íslandi finnst þeim ekki slæmt heldur.

„Það leiðinlegasta sem ég geri er að fara í búðina. Áður en ég kynntist honum fór ég ekki í búðina fyrr en korter í lokun en eftir að ég byrjaði með honum snarversnaði það,“ segir Hafdís sem hélt að hún væri komin með félagsfælni en sálfræðingur tók fyrir það. Það er hins vegar auðvelt að skríða inn í skelina þegar áreitið er mikið. 

Nán­ar er fjallað um málið í Heilsublaði Morgunblaðsins í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál