„Allir ættu að yfirgefa Teheran tafarlaust!“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti á sinn einkasamfélagsmiðil Truth Social þar sem hann er staddur á ráðstefnu G7-iðnríkjanna í Kanada. Meira
Tæplega þrítugur maður hlaut í dag 18 ára fangesisdóm fyrir Héraðsdómi Södertörn, bæjar rúmlega 20 kílómetra suður af sænsku höfuðborginni Stokkhólmi, þar sem ákæruatriðin við meðferð málsins voru tilraun til manndráps, að valda öðrum lífsháska auk grófs vopnalagabrots. Meira
Norsk lögregluyfirvöld vara nú við ólögmætri lánastarfsemi gegnum greiðslumiðlunarforritið Vipps sem er sams konar forrit og Aur á Íslandi. Óttast sérfræðingar að forritið, sem sjálft er löglegt á alla kanta, sé misnotað í Facebook-hópum sem bjóða blönkum skyndilausnir í lánaformi. Meira
Íranar hafa samkvæmt þarlendum miðlum hafið loftárásir að nýju á Ísraelsmenn í væringum sem hófust með árásum þeirra síðarnefndu á föstudaginn í því augnamiði að setja Írönum stólinn fyrir dyrnar í kjarnorkumálum. Meira
„Það myndi ekki magna átökin, heldur myndi það binda enda á þau,“ sagði Benjamín Netanjahú forsætisráherra Ísraels um hvað myndi gerast ef Ísrael myndi drepa Ali Khamenei, æðsta klerk Írans. Meira
Íbúar írönsku höfuðborgarinnar Teheran flýja hana nú hver um annan þveran af ótta við loftárásir Ísraelsmanna sem á föstudag gerðu slíkar árásir á nokkur skotmörk í Íran – að þeirra sögn til þess að hindra að þessi erkióvinur þeirra nái að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Meira
Palazzo Maffei, listasafn á Ítalíu leitar nú tveggja ferðamanna sem brutu „stól van Gogh“ á sýningu safnsins. Atvikið náðist á upptöku eftirlitsmyndavéla. Þar má sjá hvar miðaldra par þykist sitja í stólnum sem var einn af sýningarmunum. Konan þóttist aðeins sitja í stólnum en eiginmaður hennar tyllti sér í stólinn með þeim afleiðingum að hann brotnaði undan manninum. Parið flúði vettvanginn í kjölfarið. Meira
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði G7-ríkin sameinuð í því að vilja frið á milli Ísraels og Írans. Leiðtogar ríkjanna funduðu í Kananaskis í Kanada í dag. Meira
Yfirvöld í Kænugarði hafa greint frá því að þeim hafi borist 1.245 lík úkraínskra hermanna frá Rússlandi í dag. Alls hefur Úkraína endurheimt yfir 6.000 lík undanfarna viku. Meira
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti sagði Tyrkland reiðubúið til að gegna hlutverki í friðarsamræðum milli Írans og Ísraels. Meira
Donald Trump Bandaríkjaforseti hafnaði áformum Ísraela um að ráða af dögum Ayatollah Ali Khamenei, æðsta klerk Írans. Meira
Útgöngubann að nóttu til verður áfram í borginni Los Angeles í „nokkra daga í viðbót”, sagði Karen Bass borgarstjóri í gær. Meira
Fimm manns eru látnir og 92 særðir eftir flugskeytaárásir Írans á Ísrael í nótt, að sögn ísraelskrar hjálparstofnunar. Meira
Lögreglan í Minnesota í Bandaríkjunum segist hafa handtekið grunaðan morðingja þingkonu og eiginmanns hennar. Meira
dhandler