Masoud Pezeshkian, forseti Íran, segir að Íran muni hvorki hætta kjarnorkustarfsemi sinni né gefa eftir rétt sinn til að fylgja eftir borgaralegri kjarnorkuáætlun. Frá þessu greinir ríkismiðill landsins IRNA. Meira
Sergei Tikhonovsky, einn helsti stjórnarandstæðingur Hvíta Rússlands, var leystur úr haldi ásamt fjölda annarra pólitískra fanga. Eiginkona hans þakkar Donald Trump. Meira
Yfirvöld í Pakistan hafa ákveðið að tilnefna Donald Trump Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels fyrir framlag sitt í friðarviðræðum Pakistans og Indlands, að því er Reuters greinir frá. Meira
Að minnsta kosti átta manns létu lífið í suðurhluta Brasilíu í dag þegar það kviknaði í loftbelg og hann féll til jarðar. Meira
Þrír háttsettir íranskir embættismenn hafa verið drepnir í árásum Ísraela í dag auk þess sem ísraelski herinn hóf árásir á kjarnorkustöð Írans í Isfahan á ný fyrr í dag. Embættismennirnir störfuðu allir fyrir her Írans. Meira
Allison Burroghs, alríkisdómari í Boston, hefur fellt úr gildi ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að heimila Harvard-háskóla ekki að taka á móti erlendum nemendum. Meira
Hakan Fidan, utanríkisráðherra Tyrklands, sakaði Ísrael á laugardag um að leiða Mið-Austurlönd að „algjörum hörmungum“ með því að hefja loftárásir á Íran þann 13. júní. Meira
Nýleg skýrsla sem unnin var af netöryggisfyrirtækinu Cybernews varpar ljósi á að um milljarðar lykilorða og annarra upplýsinga sem þarf til að skrá sig inn á einkasvæði á netinu hafi lekið í mörgum gagnalekum fyrirtækja yfir lengri tíma. Meira
Ísraelski herinn greindi frá því í morgun að háttsettur íranskur embættismaður, Mohammad Saeed Izadi, hefði fallið í loftárás í Qom-héraði suður af höfuðborginni Tehran. Meira
dhandler