Ljúffengt meðlæti fyrir hátíðina

Sveppir fylltir með lauksultu.
Sveppir fylltir með lauksultu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sveppir fylltir með lauksultu

  • 4 stk. meðalstórir sveppir
  • smjör
  • balsamikedik
  • salt
  • pipar

Aðferð:

  1. Takið miðjustilkinn af sveppnum.
  2. Troðið smjörklumpi í miðjuna á sveppnum og kryddið hann með salti og pipar.
  3. Setjið 3-4 dropa af balsamikediki í hvern svepp.
  4. Bakið í ofni á 160 gráðum í fimm mínútur, snúið við og bætið við öðrum fimm mínútum.
  5. Takið sveppina út og fyllið með lauksultunni.

Lauksulta

  • 2 stk. gulir laukar
  • 1 tsk. hunang
  • 10 g smjör
  • 5 g edik

Aðferð:

  1. Skerið laukinn í þunnar sneiðar og setjið í pott og kveikið undir á meðalháum hita.
  2. Þegar laukurinn er byrjaður að brúnast smá er smjöri bætt við ásamt ediki.
  3. Leyfið lauknum að eldast alveg í gegn, þá er hunangi bætt við og eldað þangað til að sulta er byrjuð að myndast.
  4. Fyllið sveppinn með lauksultunni.
Hasselback-kartöflur með smjör og rósmarín.
Hasselback-kartöflur með smjör og rósmarín. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hasselback-kartöflur

  • 4 bökunarkartöflur
  • 100 g smjör
  • salt
  • rósmarín

Aðferð:

  1. Smjör er sett í pott og brætt með rósmaríni út í.
  2. Skorið er djúpt í kartöflurnar með stuttu millibili, passa skal að fara ekki í gegnum þær. 
  3. Kartöflunum er raðað í eldfast mót og smjöri hellt yfir.
  4. Kartöflurnar eru bakaðar á 180 gráðum í 50 mínútur. 
  5. Gott er að ausa smjörinu yfir þær með reglulegu millibili til að fá þær gullinbrúnar.

Þessa upp­skrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hag­kaup sem er hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka