Krassandi kokteilar

Jungle og 64°Reykjavík Distillery lögðu saman krafta sína og bjuggu …
Jungle og 64°Reykjavík Distillery lögðu saman krafta sína og bjuggu til nokkra frábæra kokteila sem má nota um jól og áramót. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í tilefni af jólahátíðinni lögðu Jungle og 64°Reykjavík Distillery saman krafta sína í kokteilagerð og deila nú með lesendum nokkrum frábærum uppskriftum að hátíðarkokteilum þar sem íslensk hráefni fá að njóta sín til hins ýtrasta.

Fyrirtækið 64°Reykjavik Distillery er fyrsta íslenska brugghúsið og margverðlaunað fyrir bæði gæði og hönnun. Til að mynda hafa fimm af vörum þess hlotið hin eftirsóttu Red dot-hönnunarverðlaun.

Á sínum tíma opnaði 64° Reykjavik Distillery aðgang að nýrri vídd í kokteilagerð þar sem náttúrulegir eiginleikar hinnar íslensku flóru fengu loks að njóta sín til hins ýtrasta.

Hér er átt við vörur eins og íslenska líkjöra úr bláberjum, krækiberjum og rabarbara ásamt Angelica-gini, einiberjagini og Kötlu vodka, allt vörur sem skipa nú ríkan sess innan hinnar ört stækkandi kokteilamenningar landsins þar sem gæði eru í hávegum höfð fremur en magn.

Kokteilarnir hér á eftir eru hannaðir af Snorra Jónssyni og hinum metnaðarfullu Jungle-gæjum, Daníel Oddssyni og Jakobi Eggertssyni. Jungle er til húsa á efri hæð Jacobsens-hússins og hefur stimplað sig inn sem óskastaður þeirra sem kunna að meta góða kokteila.

Þá hefur Jungle einnig unnið til ýmissa verðlauna, þar á meðal valinn besti kokteilbar Íslands þrjú ár í röð á BCA (Bartenders choice awards) verðlaunahátíðinni.

Nissinn 2.0

(óþekkur en samt góður )

  • 45 ml 64°brennivín
  • 30 rauðvínssíróp
  • 22,5 ml sítrónusafi
  • 2 dropar angostura bitter

Aðferð:

  1. Hrist með klökum.
  2. Sigtað út í viskíglas með ferskum klaka.
  3. Sítrónubörkur sem skraut.

Rauðvínssíróp

  1. Vigtið jafn mikið af rauðvíni og sykri saman í pott.
  2. Kyndið við vægan hita og hrærið þar til sykurinn er leystur upp.
  3. Leyfið sírópinu að kólna áður en það fer í drykkinn.
Kokteillinn Einiberjarunn er ansi jólalegur í útliti.
Kokteillinn Einiberjarunn er ansi jólalegur í útliti. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einiberjarunn

(geggjaður G&T, snemma á mánudagsmorgni)

  • 30 ml 64° einiberjagin
  • 120 ml tónik
  • 15 ml 64° Crowberry-krækiberjalíkjör.

Aðferð:

  1. Fyllið collins glasið með klaka.
  2. Bætið við einiberjagini, toppið með tónik og skvettið krækiberjalíkjör yfir.
  3. Skreytið með blóðbergi í lokin.
Kokteillinn Mandarína í skóinn.
Kokteillinn Mandarína í skóinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mandarína í skóinn

(og í tána)

  • 90 ml ferskur mandarínusafi
  • 30 ml Angelica bleikt gin
  • 30 ml aperol
  • 15 ml sítrónusafi
  • klipa af salti

Aðferð:

  1. Hristur með einum klaka þar til klakinn hefur algjörlega bráðnað (svokallað Whip-shake).
  2. Borinn fram á klaka í collins-glasi.
  3. Skreyttur með mandarínubáti.
Kokteill með kanilstöng getur varla klikkað.
Kokteill með kanilstöng getur varla klikkað. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jólasveinasíder

(hlýr eins og skeggið á sveinka)

  • 45 ml einiberjagin
  • 150 ml heitur kryddsíder

Aðferð:

  1. Borinn fram í stórum bolla

Kryddsíder

  • 1 l eplasíder
  • 60 g púðursykur
  • 1 kanilstöng

Aðferð:

  1. Hitið rólega í potti.
  2. Þegar suðan kemur skal lækka þannig að eplasíderinn haldist rétt undir suðu í 10-15 mínútur.
  3. Sigta kryddin frá og þá er heiti kryddsíderinn tilbúinn.
Áramótabomba fyrir bílstjórana.
Áramótabomba fyrir bílstjórana. mbl.is/Kristinn Magnússon

Virgin cherry-bomb

(áramótabomba bílstjórans)

  • 30 ml bitter essence (frá til dæmis Giffard)
  • Thomas Henry cherry blossom tónik

Aðferð:

  1. Borið fram í vískiglasi, hrærðan með klaka.
  2. Toppið upp með Thomas Henry cherry blossom tónik.
  3. Skreytið með sítrónuberki. 

Þessa upp­skrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hag­kaup sem er hér.

Daníel Oddsson, Snorri Jónsson og Jakob Eggertsson.
Daníel Oddsson, Snorri Jónsson og Jakob Eggertsson. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka