Smjörsprautað kalkúnaskip frá Helgu Möggu

Jólamatur
Jólamatur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Helga Margrét Gunnarsdóttir, Helga Magga, heldur úti uppskriftasíðunni helgamagga.is þar sem hún deilir alls kyns hugmyndum að hollri næringu á Instagram og TikTok en hún hefur það að markmiði að hvetja fólkið í kringum sig áfram, hvort sem það er að borða hollt, hreyfa sig eða gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni.

„Við fjölskyldan erum alltaf með kalkún á jólunum og yfirleitt verður smjörsprautaða kalkúnaskipið frá Hagkaup fyrir valinu. Það er fljótlegt og einfalt enda er oft mikið að gera á heimilinu með þrjú börn.

Meðlætið er misjafnt hjá okkur en ég er yfirleitt með sætkartöflumús og svo finnst mér æðislegt að vera með ferskt salat til að fá smá lit á diskinn.“

Kalkúnaskip

  • smjörsprautað kalkúnaskip frá Hagkaup
  • tilbúin fylling frá Hagkaup

Aðferð:

  1. Kalkúnaskipið eldar sig nánast sjálft, ég mæli með að elda það í lokuðu fati nema fólk hafi gaman af því að þrífa ofninn.
  2. Ég passa að skafa kryddsmjörið af sem verður eftir í umbúðunum og smyr því á kalkúninn. Kalkún á að elda í 180 gráðu heitum ofni í um það bil 45 mín pr kíló eða þar til kjarnhiti sýnir 70 gráður inn við bringubeinið, ef notaður er kjöthitamælir.
  3. Mitt kalkúnaskip var tvö kíló svo það var inni í ofni í 90 mínútur.
  4. Mér þykir gott að taka lokið af fatinu síðustu tíu mínúturnar svo kalkúninn brúnist aðeins meira í lokin.
Það er einfalt og þægilegt að elda smjörsprautað kalkúnaskip.
Það er einfalt og þægilegt að elda smjörsprautað kalkúnaskip. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sósa

  • 1 ferna brún sælkerasósa með smjör og rjóma frá Íslandssósum
  • 30 gr Tasty kalkúnasósugrunnur (hálfur poki)
  • 1-2 msk sinnep frá Svövu
  • 150 ml volgt vatn

Aðferð:

  1. Ég notaði tilbúna sósu í fernu því ég vil hafa hlutina einfalda og þægilega. Svo var ég með Tasty-kalkúnasósugrunn og notaði 30 g af honum (hálfan pokann) út í 150 ml af volgu vatni. Ég hellti því út í sósuna í pottinum.
  2. Þegar kalkúnninn var tilbúinn hellti ég soðinu út í sósuna til að fá auka kraft í hana.
  3. Svo notaði ég sinnep frá Svövu sem er íslensk framleiðsla og kemur í ýmsum bragðtegundum. Sinnepið er bæði sterkt og sætt svo það hentar einstaklega vel til að bragðbæta sósur.

Jólalegt ferskt salat

  • grænt salat, gjarnan klettasalat í bland
  • rauðrófur (ég nota forsoðnar, tvær litlar)
  • ein gul paprika
  • 3-4 ferskjur
  • 1 dl smátt skornar valhnetur
  • fetaostur eftir smekk
  • granateplafræ eftir smekk

Aðferð:

  1. Öllu blandað saman í skál.

Dressing

  • ½ dl olía
  • ½ dl balsamikedik
  • Safi úr hálfri límónu
  • salt, pipar og smá hvítlaukskrydd

Aðferð:

  1. Öllu hrært saman.
Jólamatur
Jólamatur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

 

Sætkartöflumús

  • 700 g sætar kartöflur
  • 50 g rjómostur
  • 2-3 msk púðursykur
  • 1 tsk múskat
  • 1/2 tsk salt

Aðferð:

  1. Ég skar stóra sæta kartöflu (um það bil 700 g) í bita og gufusauð hana í um það bil 25 mínútur.
  2. Ég lét hana kólna örlítið og blandaði svo saman við hana rjómaosti, púðursykri, múskati og salti.

Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup sem er hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert