Ljúffengur gljái á hrygginn

Jólamatur
Jólamatur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Það eru enn margir sem kjósa að hafa hamborgarhrygg um jólin enda mikilvægt fyrir suma að halda í hefðir, sérstaklega um hátíðirnar.

Hér eftir fer ljúffeng uppskrift að gljáa, kartöflum og sósu sem má hafa með hamborgarhryggnum. 

Gljái

  • 200 g púðursykur
  • 3 msk dijon-sinnep
  • 2 msk ananasþykkni

Aðferð:

  1. Öllu blandað saman og penslað á hrygginn.

Sykurbrúnaðar kartöflur

  • 1 kg flysjaðar soðnar kartöflur 
  • 100 g sykur
  • 50 g smjör
  • 2 msk vatn

Aðferð:

  1. Brúnið sykurinn á pönnu og fylgist vel með svo sykurinn brenni ekki.
  2. Bætið smjörinu út í og blandið með sleif.
  3. Bætið vatninu út í og hrærið uns allt hefur sameinast.
  4. Bætið kartöflunum í og látið krauma við vægan hita þar til kartöflurnar eru vel hjúpaðar.
Sykurbrúnaðar kartöflur og góð sósa er ómissandi með hamborgarhryggnum.
Sykurbrúnaðar kartöflur og góð sósa er ómissandi með hamborgarhryggnum. mbl.is/Kristinn Magnússon

 

Sósa

  • 500 ml svínasoði
  • 250 ml jólaöl
  • 1 tsk dijon sinnep
  • 300 ml rjómi
  • 2 msk maísena
  • 100 g smjör
  • 1 stk svínateningur
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Soðið af hryggnum er sigtað í pott.
  2. Jóalöl er bætt við og soðið er niður um 1/3
  3. Rjóma, teningi og sinnepi er þá bætt við og fengin upp suða.
  4. Sósan er þykkt með maísena.
  5. Bætið smjöri í sósuna og smakkið til með salti og pipar.

Þessa uppskrift, sem og aðrar, má finna í blaðinu Hátíðarmat frá Hagkaup sem er hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert