Loksins sjáum við rautt!

Sólrún María Regins hjá Akkúrat segir afar ánægjulegt að geta …
Sólrún María Regins hjá Akkúrat segir afar ánægjulegt að geta loksins líka boðið upp á rauðvín sem allir geta notið, óháð því hvort þeir drekka áfengi eða ekki. Samsett mynd

Síðastliðin ár hafa vinsældir á óáfengum vínum aukist til muna. Samhliða því hefur framboð líka aukist. Fyrirtækið Akkúrat er meðal þeirra sem bjóða upp á óáfeng vín og meðal nýjunga er óáfengt rauðvín sem hefur ekki verið fáanlegt. Meira hefur verið um freyðivín og rósavín.

Í fréttatilkynningu frá Akkúrat kemur fram að viðtökurnar við áfengislausu vínunum frá Oddbird hafi verið gríðarlega góðar. Að sögn Sólrúnar Maríu Reginsdóttur hjá Akkúrat sem flytur inn Oddbird vínin hafa freyðivín og rósavín  hingað til slegið í gegn við hvers konar fögnuði og uppákomur en líka með góðum mat eða einfaldlega í huggulegri stund eftir vinnu. Nýjasta viðbótin hjá þeim er óáfengt rautt vín og því segir Sólrún að þau sjá núna fyrst rautt.

Ánægjulegt að geta boðið upp á rauðvín sem allir geta notið

„Rauðvínsfólkið hefur verið svolítið út undan en við erum afar meðvituð um þá miklu eftirspurn sem er eftir góðu áfengislausu rauðvíni. Að okkar mati hafa hins vegar engir framleiðendur haft til að bera það sem við sækjumst eftir í góðu rauðvíni fyrr en núna. Fyrsta sendingin af GSM rauðvíninu frá Oddbird seldist á methraða, enda vandað og ótrúlega gott, og sú næsta er að stefna sömu leið. Nýjasta vínið frá Oddbird er einmitt líka rauðvín, Addiction, sem er tannínríkara en GSM og fyllra, rúnað og bragðmikið og við hlökkum mikið til að sjá hvernig það fellur í kramið hjá viðskiptavinum okkar. Það fer frábærlega vel með mat en er líka bara dásamlegt í kósí. Það er svo ánægjulegt að geta loksins líka boðið upp á rauðvín sem allir geta notið, óháð því hvort þeir drekka áfengi eða ekki,“ segir Sólrún og brosir.

GSM og Addiction eiga það sameiginlegt að vera einstaklega ljúffeng en eru þó ólík. GSM er silkimjúkt og þroskað vín frá Saint-Chinian í Suður Frakklandi. Hér eru og sýra og ávaxtatónar ríkjandi en vínið er unnið úr Grenache, Syrah, Mourvèdre og Carignan þrúgum sem býr til margslungið bragð sem endar á samspili af ljúfum ávaxtakeim og skerpu. Addiction mætir ákveðnara á svæðið. Hér er á ferðinni 100% lífrænt vín frá Quintana del Pidio á Spáni og einstakri víngerðartækni er beitt til að ná fram því allra besta úr þrúgunum til að skapa karaktermikið vín sem er að springa úr ávöxtum, ferskleika og margslungnu kryddbragði svo það hentar sérlega vel með góðum mat,“ segir Sólrún og bætir við að þetta sé hennar upplifun á víninu. 

GSM og Addiction eiga það sameiginlegt að vera einstaklega ljúffeng …
GSM og Addiction eiga það sameiginlegt að vera einstaklega ljúffeng en eru þó ólík að sögn Sólrúnar. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert