Hindberjahafrabakan hennar Lindu Ben

Girnileg þessi dásamlega hafrabaka með hindberjum.
Girnileg þessi dásamlega hafrabaka með hindberjum. Ljósmynd/Linda Ben

Hér höfum við alveg dásamlega góða hindberjahafraböku úr smiðju Lindu Ben sem heldur úti uppskriftavefnum Linda Ben. Bakan inniheldur engan sykur, egg eða mjólk og er vegan.

Þessi baka er einstaklega mjúk og ljúffeng. Þessa böku má algjörlega flokka sem hollustubakstur sem maður getur því notið með góðri samvisku hvenær sem er dags. Bakan hentar mjög vel til dæmis sem morgunmatur og er gullfalleg á hlaðborðið hvort sem það er í vinnunni eða fyrir helgarbrönsinn heima.

Unaður að njóta.
Unaður að njóta. Ljósmynd/Linda Ben

Hindberjahafrabakan hennar Lindu Ben

  • 200 g frosin hindber
  • 1 tsk. maís sterkja (maizenamjöl)
  • 2 msk. hörfræ
  • ½ dl vatn
  • 130 g haframjöl (50/50 grófir hafrar og fínir)
  • 2 tsk. lyftiduft
  • Safi og börkur af 1 sítrónu
  • 70 g möndlusmjör
  • 2 msk. hunang
  • 450 g hafraskyr með jarðarberjum frá Veru Örnudóttir (3 dósir, 2 dósir settar í deigið, 1 dós notuð ofan á bökuðu kökuna)
  • 100 g fersk hindber

Aðferð:

  1. Setjið frosin hindber í pott ásamt maizenamjöli, hitið á vægum hita í 3-5 mínútur eða þar til blandan byrjar að þykkna. Slökkvið undir pottinum og leyfið blöndunni að kólna.
  2. Setjið hörfræ og vatn í skál, hrærið saman og látið standa. Blandan mun þykkna eftir nokkrar mín.
  3. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  4. Setjið haframjöl og lyftiduft í skál, rífið sítrónubörkinn út í og kreistið svo sítrónusafann í skálina. Hrærið öllu saman.
  5. Setjið möndlusmjörið í skálina ásamt hunangi, hörfræjarblöndunni og 2 dósir af hafraskyrinu, blandið öllu vel saman.
  6. Smyrjið 22 cm kökuform og setjið deigið í formið, setjið hindberjablönduna yfir deigið og bakið í u.þ.b. 40 mínútur eða þar til bakan er bökuð i gegn.
  7. Kælið bökuna.
  8. Dreifið doppum af hafraskyri og ferskum hindberjum yfir bökuna.
  9. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert