Pikklaður rauðlaukur er unaðslega gott meðlæti með alls konar mat og réttum. Má þar nefna kjúklingarétti, mexíkóskan mat, á hamborgara, í salatið og hreindýrabollur svo fátt sé nefnt. Hann geymist vel í kæli en með tímanum breytist áferðin aðeins og vökvinn, sem hann er í, eykst. Það er miklu auðveldara að útbúa þennan pikklaða rauðlauk en margan hefði grunað. Þessi frábæra uppskrift kemur úr smiðju ástríðukokksins Hönnu Thordarson keramiker sem heldur úti uppskriftasíðunni hér en hún er eins og fjársjóðskista að leita í þegar uppskriftir að mat og meðlæti er annars vegar.
Pikklaður rauðlaukur
Aðferð: