Spaghetti með sveppum og spínati

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Ég fékk yfir mig mikið „kreivíng“ að útbúa einhvern góðan pastarétt. Ég elska pasta og rjómalagað skemmir alls ekki fyrir. Það þarf síðan alls ekki að vera kjöt til þess að pastaréttur komi vel út! Þessi var eins og á lúxus veitingastað og allir elskuðu hann, sagði stelpunum bara ekkert frá hvítvíninu fyrr en eftir matinn því annars hefðu þær eflaust ekki borðað,“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þennan ljúffenga pastarétt. 

Spaghetti með sveppum og spínati

Fyrir um 4 manns

  • 400 g Dececco spaghetti
  • 1 stk. skalottlaukur
  • 3 rifin hvítlauksrif
  • 250 g sveppir (portobello + kastaníu í bland)
  • 50 g spínat
  • 100 ml Muga hvítvín
  • 300 ml rjómi
  • 40 g parmesan ostur (rifinn) + meira til að bera fram með
  • Smjör og ólífuolía til steikingar
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Ristaðar furuhnetur

Aðferð:

  1. Sjóðið spaghetti í vel söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka á meðan annað er undirbúið.
  2. Saxið skalottlaukinn smátt og steikið upp úr smjöri og olíu við vægan hita, aðeins til að mýkja hann. Saltið og piprið aðeins.
  3. Skerið á meðan sveppina í sneiðar og bætið þeim ásamt hvítlauk á pönnuna. Hér þarf að bæta við smá meira smjöri og/eða olíu og steikja þar til sveppirnir mýkjast og safinn af þeim gufar upp af pönnunni.
  4. Hellið þá hvítvíninu yfir sveppablönduna og hækkið hitann vel, leyfið víninu að gufa upp og bætið þá smá smjöri/olíu á pönnuna ásamt spínatinu.
  5. Um leið og spínatið mýkist og skreppur saman má bæta rjóma og rifnum parmesanosti saman við og hræra þar til osturinn bráðnar.
  6. Kryddið til með salti og pipar og hrærið soðnu spaghetti saman við þegar það er tilbúið.
  7. Toppið með smá pipar, rifnum parmesanosti og ristuðum furuhnetum.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert