Hin fullkomna mánudagssúpa

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

„Þessi súpa er í miklu uppáhaldi og er hin fullkomna mánudagssúpa, því að hún er svo frábær kostur þegar maður kemur heim eftir langan vinnudag, nennir ekki að elda en langar samt í eitthvað gott. Súpan er fáránlega auðveld en bragðast eins og súpa á bestu veitingastöðum. Ég mæli með því að gera sér ferð í asískar verslanir og kaupa gott karrýmauk,“ segir Berglind Guðmunds á GRGS.is um þessa æðislegu súpu sem hittir alltaf í mark.

Asísk núðluspúpa með kjúkling og grænu karrí

  • 1 msk. olía
  • 2 skarlottlaukar, þunnt skornir
  • 1 msk. fínrifið engifer
  • 2 msk. grænt karrýmauk
  • 950 ml kjúklingasoð (eða vatn og 1-2 msk kjúklingakraftur)
  • 1 dós kókosmjólk
  • 2 msk. fiskisósa (fish sauce)
  • 4 tsk. púðursykur
  • safi úr 1 límónu (lime)
  • 1/2 tsk. turmeric

Annað:

  • 100 g þunnar hrísgrjónanúðlur
  • 1/2 eldaður kjúklingur, rifinn niður með gaffli
  • 1 búnt kóríander, saxað
  • 4 vorlaukar, þunnt skornir
  • chilísósa
  • límóna skorin í báta

Aðferð:

  1. Hitið olíu í potti við miðlungshita og steikið skarlottlauk og engifer í 2-3 mínútur.
  2. Bætið grænu karrý saman við og steikið í 1 mínútur.
  3. Látið kjúklingasoð, kókosmjólk, fiskisósu, púðursykur, límónusafa og turmeric saman við og látið malla í 5 mínútur.
  4. Sjóðið núðlur samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
  5. Smakkið súpuna til og bætið við að eigin smekk.
  6. Látið núðlur og kjúkling í skálar og toppið með kóríander, vorlauk og toppið jafnvel með smá chilísósu (ég notaði rautt chilí).
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka