Nýr haustlitur frá Stelton kominn í hús

Nýr litur í kaffikönnunni vinsælu frá Stelton.
Nýr litur í kaffikönnunni vinsælu frá Stelton. mbl.is/Stelton

Hitakannan frá Stelton er heimsþekkt hönnunartákn frá árinu 1977. Hér í nýjum fallegum haustlit sem kallar á náttúruna heim í hús. 

Kaffikannan EM77 hefur verið framleidd í meira en 100 mismunandi litum og er nú fáanleg í nýjum lit er kallast 'Börk'. Þessi stílhreina hitakanna er blanda af fullkomnu formi og virkni, og má finna víða á hönnunarsöfnum út um allan heim. En kannan er með svokallaðri glerjun að innan sem heldur vökvanum heitum eða köldum klukkustundum saman - og gerir hana svona einstaka. 

Nýji liturinn 'Börk', fagnar hér tilkomu haustsins og er bein vísun í trjástofna skógarins og þá tilfinningu sem við fáum er við njótum útiverunnar í náttúrunni. 

mbl.is/Stelton
mbl.is/Stelton
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert