Súrdeigspítsa með chili og ristuðum möndlum

Þessi er alveg svakalega góð! Súrdeigspítsa með chili og ristuðum …
Þessi er alveg svakalega góð! Súrdeigspítsa með chili og ristuðum möndlum. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Syndsamlega góð pítsa – þar sem Indland og Ítalía mætast og trylla bragðlaukana. Hér í boði Snorra hjá Mat og myndum.

„Það verða einhverjir töfrar til þegar tikka masala-sósan, bráðinn mozzarellaosturinn og kryddaður kjúklingurinn blandast saman á súrdeigspítsubotninum. Ég mæli ofsalega mikið með því að fólk fjárfesti í pítsusteini ef það er fyrir það að gera pítsu heima hjá sér. Gæðin á pítsunum ykkar munu rjúka upp, treystið mér! Ef pítsusteinn er ekki á heimilinu má nota bökunarplötu en hitið hana þá samt fyrst í ofninum áður en pítsan er sett á plötuna,“ segir Snorri.

Súrdeigspítsa með chili og ristuðum möndlum

  • Súrdeigspítsudeig, 300 g / ég notaði deigið frá Brikk
  • kjúklingalæri, 180 g / 2 læri
  • tandoori masala-kryddblanda, 0,5 msk / Kryddhúsið
  • heilar möndlur, 2 msk
  • tikka masala-sósa, 120 ml / frá Patak
  • mozzarella rifinn, 120 g
  • rauðlaukur, eftir smekk
  • ferskt chili, eftir smekk
  • kóríander, eftir smekk

Aðferð:

  1. Takið deigið úr kæli 2 klst áður en byrjað er að elda.
  2. Leggið kjúklingalæri í skál ásamt 1 msk af olíu, tandoori-kryddblöndu og svolitlu salti. Láið marinerast í 20-30 mín.
  3. Leggið kjúklinginn á ofnplötu með bökunarpappír og bakið við 200°C á blæstri í um 30 mín. eða þar til kjúklingurinn er orðinn fallega brúnaður. Komið möndlunum fyrir á ofnplötunni með kjúklingnum þegar um 7 mín. eru eftir af eldunartímanum.
  4. Rífið kjúklinginn í sundur með tveimur göfflum og saxið möndlur gróflega. Sneiðið rauðlauk í strimla.
  5. Forhitið pítsustein (eða ofnplötu) í botninum á ofni upp í 250°C með yfir- og undirhita.
  6. Notið hendurnar til þess að fletja pítsubotninn út í um 28 cm hring og leggið svo á bökunarpappír. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist mun betur.
  7. Dreifið tikka masala-sósu yfir botninn og svo mozzarellaosti yfir. Dreifið kjúklingi, rauðlauk og ristuðum möndlum yfir og bakið pítsuna svo í 8-10 mín. eða þar til kantarnir eru fallega gylltir.
  8. Sneiðið chili í sneiðar og saxið kóríander. Dreifið yfir pítsuna eftir að hún er skorin í sneiðar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka