Yfirliðsvaldandi lax með rjóma- og parmesansósu

Ofnbakaður lax í rjómasósu er algjört lostæti.
Ofnbakaður lax í rjómasósu er algjört lostæti. mbl.is/Winnie Methmann

Lax og kartöflur eru frábær samsetning en enn þá betra þegar rjóma er bætt saman við. Hér er einmitt einn slíkur réttur sem fær fullt hús stiga.

Ofnbakaður lax í rjómasósu

  • 500 g frosið spínat
  • 5 dl rjómi
  • 100 g nýrifinn parmesan
  • 1 tsk. múskat
  • Salt og pipar
  • 600 g lax
  • ½ kg kartöflur
  • 125 g blandað grænt salat

Aðferð:

  1. Látið spínatið þiðna í sigti. Pressið með skeið allan vökva úr spínatinu.
  2. Hrærið saman rjóma, parmesan, múskat, salt og pipar í skál. 
  3. Skerið roðið frá laxinum og skerið laxinn í hæfilega stóra bita.
  4. Setjið spínatið í eldfast mót og hellið helmingnum af rjómablöndunni yfir. Setjið laxinn ofan á spínatið og kryddið með salti og pipar.
  5. Skrælið kartöflurnar og skerið í þunnar skífur með mandolínjárni. Leggið skífurnar yfir laxinn og hellið restinni af rjómablöndunni yfir kartöflurnar.
  6. Setjið inn í ofn í 40 mínútur þar til kartöflurnar og rjóminn hafa tekið lit. Berið fram með grænu salati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert