Mascarpone tortellini með tómat og spínati

mbl.is/Gott í matinn

Hér er á ferðinni lauflétt og fljótleg pasta uppskrift sem er í miklu uppáhaldi hjá Helenu Gunnarsdóttur matgæðingi hjá gottimatinn.is. Uppskriftinni er hægt að breyta og bæta eftir eigin höfði en það er frábært að nota Mascarpone ostinn í matargerð. Hann gefur dásamlegt rjómabragð á móti skarpri tómatsósunni og bakast skemmtilega í ofninum. Þessa er upplagt að skella í þegar grillinu er leyft að hvíla. Fljótlegur og sumarlegur notalegheitamatur!

Mascarpone tortellini með tómat og spínati

  • 500 g ferskt eða þurrkað tortellini pasta
  • 1 stk. laukur, smátt saxaður
  • 2 stk. hvítlauksrif, smátt söxuð
  • 2 msk. smjör
  • 200 g ferskt spínat, saxað
  • 2 dósir hakkaðir tómatar
  • 1 msk. tómatpaste
  • 1 tsk. grænmetiskraftur eða grænmetisteningur
  • Salt og pipar
  • 150 g íslenskur Mascarpone rjómaostur
  • Ein fersk Mozzarella kúla
  • Rifinn parmesan ostur eftir smekk

Aðferð:

1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum. Sigtið vatnið frá og setjið pastað til hliðar.

2. Steikið laukinn og hvítlaukinn í smjörinu þar til mýkist. Setjið spínatið á pönnuna og steikið aðeins áfram.

3. Hellið tómötum og tómatpaste á pönnuna ásamt grænmetiskrafti. Látið malla í fimm mínutur og smakkið til með salti og pipar.

4. Hitið grill í ofni við háan hita. Setjið pastað saman við sósuna og blandið saman. Setjið litlar doppur af Mascarpone osti með teskeið ofan á pastað ásamt Mozzarella í litlum bitum og toppið með rifnum parmesan.

5. Setjið í eldfast mót ef pannan þolir ekki ofn. Bakið undir grilli við háan hita þar til osturinn er gullinbrúnn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert