Rjómatertan sem á enga sína líka

mbl.is/María Gomez

Hér erum við með eitthvað algjörlega splunkunýtt og höldum vart vatni af spenningi. Þessi kaka er úr smiðju hinnar spænskættuðu Maríu Gomez á Paz.is en hún segir að kakan eigi enga sína líka. Efsta lagið minni á Créme Brulee og kakan sé fyllt með ofboðslega góðu kremi sem sé aðallega gert úr rjóma. 

„Ég lofa að þessi uppskrift er ofboðslega auðveld og fljótgerð og þið munuð varla trúa því hvað er létt að gera svona góða tertu. Það eina sem er mikilvægt að eiga er brennari til að brenna sykurinn ofan á, en hann er orðið hægt að fá mjög ódýran jafnvel í matvöruverslunum,“ segir María um kökuna. 

mbl.is/María Gomez

Tarta de San Marcos

Svampbotn

  • 2 egg
  • 70 g sykur
  • 30 g hveiti
  • 35 g kartöflumjöl
  • 1 tsk. lyftiduft

Aðferð:

  1. Eggin þeytt vel og sykri síðan bætt við meðan er að þeytast
  2. Egg og sykur þeytt mjög vel þar til það er orðið ljóst og loftkennt þá er slökkt á hrærivélinni
  3. Hveiti, lyftiduft og kartöflumjöl er svo sigtað saman út í skálina.
  4. Blandið varlega við deigið með sleif, passið að hræra ekki á fullu heldur blanda mjög varlega saman með sleifinni svo loftið fari ekki úr, þannig verður svampbotninn léttur og svampkenndur
  5. Deigið er svo sett í smurt tertuform. Ég notaðist við 21 cm form (sker svo svampinn fyrir miðju til að fá tvö örþunna botna) Ef þið viljið nota stærra form ráðlegg ég ykkur að tvöfalda þessa uppskrift og setja í tvö stærri form eins og 26 cm en hún er best með 21 cm forminu
  6. Bakið í 12-17 mínútur (byrjið á 12 mínútum). Fyrstu 5 mínúturnar er deigið bakað við 200°C en síðan við 185°C restina af tímanum með blæstri
  7. Stingið í miðjan botninn með prjóni og ef ekkert kemur á prjóninn er botninn tilbúinn ef deig kemur á hann er gott að bæta við þessum 5 aukamínútum

Sykurvatn til að bleyta svampbotnana:

  • 1 dl soðið vatn
  • 1 msk. sykur
  • 1/2 tsk. vanilluextrakt eða dropar
Öllu blandað saman og hrært vel í. (Getið líka notað safa af perum úr dós sem dæmi).

Fylling

  • 750 ml rjómi
  • 200 gr. flórsykur
  • 3 msk. bökunarkakó
  • 1/2 tsk. Cream of Tartar

Aðferð:

  1. Setjið í hrærivélarskál rjóma, flórsykur og cream of tartar
  2. Þeytið vel þar til rjóminn er orðinn stífur
  3. Skiptið þá kreminu í tvennt
  4. Hafið annan helminginn eins og hann er og bætið 3 msk. af bökunarkakói í hinn helminginn og hrærið varlega saman með sleikju
  5. Geymið í ísskáp meðan næsta skref er gert

Yema quemada (efsta lagið á tertunni)

  • Tvö egg
  • 10 gr. Maizena-mjöl
  • 140 gr. strásykur
  • 60 ml vatn
  • Aukasykur ofan á til að brenna

Aðferð:

  1. Brjótið eggin í skál og hrærið vel í með gaffli
  2. Setjið svo eggin í gegnum sigti til að taka alla köggla
  3. Bætið svo restinni af innihaldsefnunum í skálina og hrærið mjög vel þar til allt er leyst upp og blandað vel saman
  4. Setjið þá allt saman í pott og látið byrja að sjóða en hrærið stöðugt í á meðan, og líka meðan er að sjóða
  5. Blandan á að þykkna dáldið vel en þegar hún er orðin vel þykk er gott að setja hana í skál og halda aðeins áfram að hræra í smástund

Tertan sett saman

  1. Byrjið á að skera svampbotninn í tvennt fyrir miðju til að fá tvo þunna örþunna botna
  2. Setjið nú annan helminginn á disk og dreitlið smá sykurvatni yfir (passa ekki samt drekkja honum bara dropa yfir hér og þar)
  3. Sprautið eða smyrjið með hníf hvíta kreminu á botninn
  4. Setjið svo súkkulaðikremið þar ofan á
  5. Dreitlið svo smá sykurvatni á hinn helmingin af svampinum og leggið ofan á súkkulaðikremið
  6. Smyrjið svo Yema quemada-kreminu ofan á
  7. Stráið að lokum strásykri ofan á efsta lagi og brennið með brennara, setjið þykkt lag af sykri og brennið vel
  8. Skreytið svo eins og ykkur lystir eða bræðið smá dökkt súkkulaði og látið ofan á eins og þræði ef þið viljið

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

mbl.is/María Gomez
mbl.is/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert