Svona gerir þú Pasta alla Norma

Einn þekktasti pastaréttur Sikileyjar er pasta alla Norma. Upprunalega uppskriftin samanstendur af makkarónum, eggaldini, tómötum, ricotta salata-osti og basilíku. Nafn réttarins er talið tilkomið þannig að þegar ítalski rithöfundurinn Nino Martoglio á að hafa smakkað þessa samsetningu hafi hann líkt henni við Normu – óperu Vincenzo Bellini.

Pasta alla Norma

  • 1 kg penne-pasta eða makkarónur
  • 4 msk. jómfrúarolía
  • 4 hvítlauksrif, þunnt skorin
  • 1 eggaldin, í stærra lagi, skorið í litla bita
  • 2 msk. tómatþykkni
  • 1 bolli ricotta-ostur
  • salt og pipar eftir smekk
  • 1 miðlungsstór laukur, þunnt sneiddur
  • ½ tsk. mulinn þurrkaður chili-pipar (má vera meira)
  • oregano, þurrkað (má sleppa)
  • 600 g plómutómatar, kjarnhreinsaðir og skornir í litla bita
  • 1 bolli fersk basilíkublöð og smávegis aukalega til að skreyta með

Aðferð:

Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka í söltuðu vatni. Hellið vatninu af og skellið pastanu aftur í pottinn.

Hitið olíu á stórri pönnu við miðlungshita og mýkið lauk, hvítlauk og mulinn chili-piparinn í um 5 mínútur.

Bætið eggaldini við á pönnuna, saltið vel og piprið og kryddið með oregano ef vill, steikið í um 8 mínútur, bætið nokkrum msk. af vatni á pönnuna ef grænmetið fer að brenna.

Blandið tómötum, tómatþykkni og ¼ bolla af vatni saman við, náið upp suðu og látið malla áfram í um 5 mínútur. Blandið þá basilíkunnni og sósunni saman við pastað í pottinum og hitið örlítið ef þarf. Setjið ricotta-ost yfir hvern skammt og skreytið með basilíku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert