Salatið sem þú þarfnast í janúar

Salatið sem þú munt vilja borða restina af árinu.
Salatið sem þú munt vilja borða restina af árinu. mbl.is/Columbus Leth

Við þurfum á þessu salati að halda í fyrsta mánuði ársins. Og jafnvel restina af árinu ef út í það er farið. Hér bjóðum við upp á kjúklingasalat með bragðgóðri sinnepsdressingu.

Salatið sem þú þarfnast í janúar (fyrir 2)

  • 200 g kínóa
  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 1 skallottlaukur
  • 200 g kjúklingabringur
  • Salt og pipar
  • ¼ hvítkál, gjarnan rautt
  • 1 avocado
  • 12 cherry-tómatar
  • Ferskt timían

Sinnepsdressing:

  • 1 msk. sinnep
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1 msk. edik
  • 1 tsk. hunang
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Sjóðið kínóa samkvæmt leiðbeiningum.
  2. Blandið kínóa saman við olíu, sítrónusafa og fínt saxaðan skallottlauk, og leyfið því að kólna.
  3. Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið upp úr olíu á pönnu, saltið og piprið. Leyfið kjúklingnum að kólna.
  4. Skerið kálið fínt og avocado í litla bita. Skerið tómatana til helminga.
  5. Skiptið hráefnunum til helminga á tvo diska eða krukkur (upplagt til að taka með sem nesti).
  6. Sinnepsdressing: Hrærið öll hráefnin saman og hellið yfir þegar njóta á salatsins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert