Grillaðar risarækjur með hvítlauksmajó

Gómsætar grillaðar risarækjur með hvítlauksmajónesi geta ekki klikkað.
Gómsætar grillaðar risarækjur með hvítlauksmajónesi geta ekki klikkað. mbl.is/Line Thit Klein

Við elskum allan grillmat og þessi uppskrift er engin undantekning. Hér höfum við marineraðar rækjur í nóg af sítrónu, olíu og kryddjurtum að eigin vali. Sannkölluð kóngamáltíð þar sem hvítlauksmajónesið er fullkomið til að dýfa rækjunum í.

Grillaðar risarækjur með hvítlauksmajó (fyrir 4)

  • 500 g risarækjur
  • 1 stór sítróna
  • 3 stór hvítlauksrif
  • 1 búnt af steinselju
  • 3 msk ólífuolía
  • Tréspjót

Hvítlauksmajónes:

  • 2 eggjarauður
  • ½ tsk salt
  • 1 tsk dijonsinnep
  • ½ sítróna
  • 1 stór hvítlaukur
  • 2 msk steinselja
  • 2 dl bragðgóð olía

Aðferð:

  1. Blandið sítrónusafa, fínt hökkuðum hvítlauk, grófhökkuðum kryddjurtum og ólífuolíu saman og veltið rækjunum upp úr blöndunni. Látið standa í hálftíma.
  2. Majónes: Hrærið eggjarauðunum við salt, sinnep, sítrónusafa og fínst söxuðum hvítlauk. Hellið olíunni varlega út í á meðan hrært er í, stöðugt.
  3. Blandið fínt saxaðri steinselju út í majónesblönduna og smakkið til með salti og sítrónusafa.
  4. Setjið rækjurnar á tréspjót og grillið í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
  5. Berið strax fram með heimagerðu majónesi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert