Surf & Turf með vinkonunum

Þessar fallegu steikur slógu í gegn hjá vinkonunum.
Þessar fallegu steikur slógu í gegn hjá vinkonunum. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Matarvefurinn fékk kryddsérfræðinginn Auði Rafnsdóttur til að deila einni af sinni uppáhaldsgrilluppskriftum sem hún eldar gjarnan eftir handa vinkonunum.

„Að þessu sinni ákváðum við vinkonurnar að grilla T-bone-steikur og risarækjur. Surf & Turf-matseðillinn varð vinsæll í Bandaríkjunum upp úr 1960, um er að ræða matseðil með bæði fisk- og kjötmeti.“

T-bone-steik

Sirka 200 g á mann. „Það er ekkert stórkostlegra en að komast yfir flottar og þykkar T-bone-steikur, en það er lund og fillet á beini, mjög bragðmikil steik.“

Aðferð:

  1. Steikurnar voru teknar úr ísskáp 3 klst. fyrir eldun og leyft að ná stofuhita, penslaðar klst. fyrir eldun með trufflu marineringu frá kjötbúðinni á Grensási og grillaðar við háan hita í 2,5 mínútur og síðan snúið í 90 gráður til að fá krossgrillröndina og áfram í 2,5 mínútur og endurtekið á hinni hliðinni sem gerði 55° kjarnhita eða medium rare.
  2. Að því loknu voru steikurnar teknar af grillinu, álpappír settur yfir og þær látnar standa í 15 mínútur.
  3. Athugið að grilltíminn ræðst nokkuð af því hversu heitt grillið verður, hversu þykkar steikurnar eru og hvernig þið viljið þær steiktar.

Marineraðar risarækjur, grænmeti og salat:

  • 20-30 risarækjur
  • 2 hausar Romain-salat, gróft skorið (hægt að nota hvaða salat sem er)
  • 20 litlir tómatar, skornir til helminga
  • 1 appelsínugul paprika, gróft skorin
  • 1 rauðlaukur, gróft skorinn
  • 5 gulrætur, gróft skornar
  • 10 stk. aspas, gróft skorinn 

Marinering:

  • 3 dl. kryddjurtaolía (eða hvaða olía sem er)
  • ½ lime, safinn
  • 1 dl. ferskt oregano, smátt saxað
  • 1 msk. hunang
  • 2 tsk. grillkrydd frá Krydd- og tehúsinusalt
  • pipar 

Aðferð:

  1. Bæði rækjur og grænmeti er marinerað í klukkutíma.
  2. Grænmetið, allt nema salatið er eldað í ofni í ca. 15 mínútur og svo látið kólna.
  3. Rækjurnar eru eldaðar í ofni í ca. 5-8 mínútur og svo látnar kólna.
  4. Öllu er blandað vel saman í stóra skál og afganginum af marineringu helt yfir eftir smekk.

Chimichurri-sósa : Salsa frá Argentínu og Uruguay.

Lausleg þýðing: „a mixture of several things in no particular order“

Margir setja allt í mixer og blanda þannig öllum hráefnunum saman.. Það gerir maður ekki með Chimichurri.

Allt hráefnið í Chimichurri er saxað smátt niður með beittum hníf með ást og umhyggju, sett í skál, hrært saman og látið standa við stofuhita – það er þá sem töfrarnir gerast.

Chimichurri fyrir 2-4

  • 1 búnt steinselja – skera af mest af stönglinum
  • 4-8 greinar ferskt oregano – hreinsa blöðin af stönglinum
  • 4-8 hvítlauksgeirar
  • ¾ bollar ólívuolía
  • ¼ bolli rauðvínsedik
  • 1 sítróna, safinn
  • 1-2 msk. skalottlaukur eða rauðlaukur
  • 1 tsk. þurrkað oregano
  • 1 tsk. svartur pipar
  • ½ tsk. maldon-salt
  • ½-1 msk. hunang eða agave-síróp eftir smekk
  • ½ til 1 tsk. mulinn chilli – lítill þurrkaður chilli sem keyptur er í Asíubúð, settur heill í matvinnsluvél og saxaður í smátt – þá færðu alvöru eld á varirnar (annað er ekki chilli). 

Chimichurri þarf að standa í allavega 8 klukkutíma til að brotna niður. Það má smakka sig áfram, dash af salti, svörtum pipar eða sætu.

Ef hún stendur yfir nótt að láta hana þá standa í ísskáp.

Ferskt og fallegt hráefni í salatið.
Ferskt og fallegt hráefni í salatið. mbl.is/ Haraldur Jónasson/Hari
Eftir að rækjurnar og grænmetið hefur kólnað er því blandað …
Eftir að rækjurnar og grænmetið hefur kólnað er því blandað saman. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Steikin er svo skorin lekkert á disk og borin fram …
Steikin er svo skorin lekkert á disk og borin fram með salatinu. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Diskarnir sumarlegu eru frá Indisku í Kringlunni.
Diskarnir sumarlegu eru frá Indisku í Kringlunni. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert