Svínapurusteik að hætti Helenu

Stökk pura er lykilatriðið!
Stökk pura er lykilatriðið! Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Svínapurusteik er eitt það albesta sem hægt er að gæða sér á enda vita Danir fátt betra og Íslendingar greinilega ekki heldur ef eitthvað er að marka vinsældir hinnar dönsku Jómfrúr.
Þessi uppskrift kemur frá Helenu Gunnarsdóttur matarbloggara á GottíMatinn.is og þykir steinliggja! 

Svínapurusteik að hætti Helenu

  • 1 stk. svínasíða
  • 3 stk. lárviðarlauf
  • 1 msk. piparkorn
  • 1 stk. laukur, skorinn gróft
  • 2 stk. teningar af svínakjötskrafti eða 2 msk. svínakraftur
  • Flögusalt, t.d. gott sjávarsalt

Aðferð:

  1. Setjið kjötið í stóran pott ásamt lárviðarlaufum, piparkornum, lauk og kjötkrafti. Hellið vatni yfir þannig að rétt fljóti yfir kjötið.
  2. Setjið á eldavél og kveikið undir, hleypið suðunni rólega upp (ég nota stillingu 7 af 10). Þegar suðan er komin, lækkið þá vel undir og leyfið kjötinu að malla við vægan hita í um 40 mínútur.
  3. Hitið ofn í 240°, gjarnan með blæstri.
  4. Takið kjötið úr pottinum og leggið í fat, puruhliðina upp, leyfið aðeins að rjúka úr því og þerrið með eldhúspappír. Ef það er búið að skera í kjötið, farið þá aftur í rifurnar með beittum hníf, gerið jafnvel fleiri rendur og skerið vel alveg niður að kjötinu. Nuddið svo vel af salti á puruna og passið að fara vel ofan í rifurnar en líka að hafa salt ofan á skinninu.
  5. Setjið inn í ofn og látið puruna stökkna og „poppast“. Þetta getur tekið 20-40 mínútur. Fylgist vel með kjötinu.
  6. Fallegt er að skreyta með lárviðarlaufum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert