Sjálfstæðisflokkur mælist með 71% fylgi í Reykjanesbæ

Fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ mælist rúm 71% í skoðanakönnun, sem Fréttablaðið birtir í dag. Gangi það eftir fengi flokkurinn 8-9 bæjarfulltrúa af 11 í sveitarstjórnakosningunum eftir hálfan mánuð. Fylgi A-lista, sameiginlegs framboðs Samfylkingar og Framsóknarflokks, mælist 23,7% og fengi flokkurinn 2-3 fulltrúa.

Fylgi Frjálslynda flokksins mælist 2%, Reykjanesbæjarlistans 1,7% og 0,8% sögðust ætla að kjósa Vinstrihreyfinguna-grænt framboð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert