Er Ásdís Rán frambjóðandi Austfirðinga?

Stef­án Bogi Sveins­son­ héraðsskjala­vörður segir að Ásdís Rán Gunnarsdóttir sé í raun frambjóðandi Austfirðinga þar sem hún sé ættuð þaðan.

Þetta kom fram í máli Stefáns Boga á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is á Egilsstöðum sem haldinn var á mánudaginn.

Hann sagði aðspurður að fólk búsett fyrir austan væri svolítið fjarri forsetakosningum iðulega.

„Reyndar okkar frambjóðandi hér úr héraði í dag ætti náttúrulega að vera Ásdís Rán Gunnarsdóttir. Hún er okkar kona, hún á fjölskyldu hér og hún er sá einstaklingur sem er skyldust mér af öllum þeim sem nokkurn tímann hafa gefið kost til embættis forseta Íslands,“ sagði hann og uppskar mikinn hlátur og klapp frá fundargestum.

Vel sóttur fundur

Hátt í 200 manns sóttu forsetafundinn sem haldinn var með Höllu Hrund Logadóttur. Sér­stak­ir álits­gjaf­ar voru fengn­ir á borg­ar­a­fund­inn til að spá í spil­in og voru það þau Stef­án Bogi og Hrafn­dís­ Bára Ein­ars­dótt­ir hót­eleig­andi.

Fleiri fund­ir eru á döf­inni í Hring­ferð Morg­un­blaðsins en 14. maí verður forseta­fund­ur á Hót­el Sel­fossi klukkan 19.30 með Baldri Þór­halls­syni. Þá verður forseta­fund­ur á Græna hatt­in­um á Ak­ur­eyri 20. maí klukkan 19.30 með Katrínu Jakobsdóttur. 

Horfðu eða hlustaðu á þátt­inn í heild sinni á Spotify: 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert