Áslaug skipuð rektor Háskólans á Akureyri

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir.
Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir. Ljósmynd/Háskólinn á Akureyri

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir hefur verið skipuð rektor Háskólans á Akureyri frá og með 1. júlí.

Skipan Áslaugar er samkvæmt ákvörðun Háskólaráðs frá 2. apríl síðastliðnum um að tilnefna hana sem næsta rektor skólans. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra samþykkti tillöguna og tekur Áslaug við rektorsstöðunni 1. júlí næstkomandi. Alls bárust fimm umsóknir um embættið en skipað er til fimm ára, að því er segir á vef HA.

Þá segir að Áslaug starfi núna sem prófessor við Bates Collage, Lewiston, Maine og hafi starfað þar síðan árið 2001.

Áslaug hefur gegnt þar ýmsum stjórnunarstörfum, s.s. starfi aðstoðarrektors og starfi deildarforseta. Áslaug er með doktorsgráðu í stjórnmálafræði frá Washington University in St. Louis í Bandaríkjunum. Auk þess að hafa unnið við kennslu og rannsóknir, hefur Áslaug víðtæka stjórnunarreynslu. Hún hefur í gegnum störf sín hjá Bates College meðal annars komið að stjórnun rannsóknasjóðs, endurskoðun á nefndakerfi, yfirumsjón með námsmati, endurskipulagningu deildar og fleiri verkefnum bæði sem stjórnandi og prófessor. Áslaug hefur einnig starfað sem gestaprófessor við Háskólasetur Vestfjarða og sem Fulbright fræðimaður hjá Háskóla Íslands, segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka