Staðfesta 120 milljóna króna sekt á Arnarlax

Mat­væla­stofn­un tel­ur aðgæslu­leysi Arn­ar­lax hafi verið víta­vert og af­leiðing­ar þess …
Mat­væla­stofn­un tel­ur aðgæslu­leysi Arn­ar­lax hafi verið víta­vert og af­leiðing­ar þess mjög al­var­leg­ar. mbl.is/Guðlaugur J. Albertsson

Matvælaráðuneytið hefur staðfest 120 milljóna króna stjórnvaldssekt Matvælastofnunar á Arn­ar­lax ehf. fyr­ir að hafa brotið gegn skyldu um að til­kynna um strok á fiski og beita sér fyr­ir veiðum á strok­fiski.

Arnarlax kærði ákvörðun Mast frá 25. nóvember 2022 og sagði for­send­ur áfrýj­un­ar vera að öll­um viðbragðsferl­um fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið fylgt til hins ítr­asta, sem og lög­um og regl­um. Það hafi bæði verið gert í aðdrag­anda óhapps­ins og í kjöl­far þess.

Frávik sem hefðu átt að vekja grunsemdir

Í úrskurði matvælaráðuneytisins segir að brotin hafi falist í því að Arnarlax hafi ekki sinnt skyldu sinni til að tilkynna strok á eldisfiski úr einni kví í júní 2022 og fyrir að beita sér fyrir veiðum á 81.564 strokufiskum.

Þá segir að alls hafi 132.976 löxum verið komið fyrir í kvínni í október 2020 og júlí 2021. Skráð afföll voru 33.097 fiskar en í október 2022, þegar slátrun var lokið úr kvínni, reyndist fjöldinn sem kom upp úr kvínni aðeins vera 18.315 laxar.

„Arnarlax ehf. tilkynnti í ágústlok 2021 að gat hefði fundist á einni sjókví. Samkvæmt niðurstöðum MAST voru viðbrögð fyrirtækisins þá í samræmi við kröfur sem gerðar eru þegar slíkir atburðir eiga sér stað.

Þegar tölur úr slátruninni úr kvínni í október 2022 lágu fyrir og ljóst var að ekki var hægt að gera grein fyrir afdrifum rúmlega 80 þúsund laxa, hóf MAST strax rannsókn og krafði Arnarlax meðal annars um skýringar á misræmi í fóðurgjöf miðað við uppgefinn fjölda fiska.

Kom þá í ljós að veruleg frávik höfðu orðið í fóðurgjöf í kví frá því í júní 2021, eða tveimur mánuðum áður en tilkynnt var um gatið. Þetta hefði átt að vekja sterkar grunsemdir fyrirtækisins um að eitthvað alvarlegt væri á seyði,“ segir í úrskurðinum.

Um alvarlegt brot að ræða

Samkvæmt 1. gr. laga um fiskeldi eru markmið laganna meðal annars að stuðla að ábyrgu fiskeldi og tryggja verndun villtra nytjastofna.

Í þessu atviki taldi MAST að um alvarlegt brot væri að ræða, bæði út frá umfangi og hættu fyrir villta nytjastofna og lífríki.

Matvælastofnun getur lagt stjórnvaldssekt á þá aðila sem brjóta gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski, hvort sem umrædd brot megi rekja til ásetnings eða gáleysis.

„Við ákvörðun sektarfjárhæðar ber hins vegar að líta til þess að um verulega alvarlegt brot er að ræða sem getur haft óafturkræf áhrif á villta nytjastofna,“ segir í úrskurðinum. 

Þá er tekið fram að sú staðreynd að hægt hefði verið að koma í veg fyrir brotið, ef Arnarlax hefði viðhaft eðlilega grandsemi í rekstri sínum, hafi aukið alvarleika þess. 

Hægt er að lesa úrskurð matvælaráðuneytisins hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka