Breytingarnar þær mestu frá upphafi

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kynnir á mánudaginn viðamiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu undir yfirskriftinni „Öll með“.

Markmið breytinganna er að einfalda örorkulífeyriskerfið, draga úr tekjutengingum og gera kerfið réttlátara, að því er segir í tilkynningu.

Fundurinn verður í beinni útsendingu. Auk ráðherra flytja á fundinum innlegg þær Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK, Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar. Fundarstjóri er Þuríður Harpa Sigurðardóttir.

Hægt verður að horfa á útsendinguna með texta fyrir þau sem það kjósa.

„Hér er um umbyltingu að ræða og mestu breytingar á örorkulífeyriskerfinu frá upphafi,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í tilkynningunni.

„Fólk á ekki að mæta þröskuldum heldur þjónustu. Við umbyltinguna tökum við betur utan um fólk en áður, hvort sem það tekur þátt á vinnumarkaði eða ekki. Leiðarljósið er skýrt: Að stuðla að bættum kjörum og meira öryggi og vellíðan fólks. Grunnhugsunin er sú að við séum öll með og skiptum öll máli,” bætir hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert