Þrjú og hálft ár fyrir skotárás í Úlfarsárdal

Frá þingfestingu málsins í febrúar. Shokri Keryo var fundinn sekur …
Frá þingfestingu málsins í febrúar. Shokri Keryo var fundinn sekur um hættubrot þegar hann skaut af byssu í átt að fjórum einstaklingum. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um tilraun til manndráps. mbl.is/Eyþór

Shokri Keryo, sænskur karlmaður sem er 21 árs gamall, var í morgun dæmdur í þriggja ára og sex mánaða fangelsi fyrir skotárás í Úlfarsárdal í nóvember.

Maðurinn er sakfelldur fyrir hættubrot, en sýknaður fyrir tilraun til manndráp. Þetta staðfestir Dagmar Ösp Vésteinsdóttir, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, við mbl.is.

Shokri neitaði sök á skotárásinni fyrir dómi í mars. Sagðist hann lítið muna eftir kvöldinu umrædda þar sem hann var sakaður og dæmdur fyrir að hafa skotið fjórum skotum í áttina að fjórum einstaklingum. Eitt skot­anna fór inn um glugga hjá fjög­urra manna fjöl­skyldu, sem er mál­inu að öllu óviðkom­andi. 

Sá sem særðist í árás­inni heit­ir Gabrí­el Doua­ne Boama en hann hef­ur hlotið dóma fyr­ir of­beld­is­brot. Hann sagðist ekk­ert muna eft­ir árás­inni fyr­ir dómi, né vita um hana. 

Shokri hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því hann var handtekinn eftir árásina.

Gabríel Douane Boama særðist í árásinni sem gerð var við …
Gabríel Douane Boama særðist í árásinni sem gerð var við Silfurtjörn í Úlfarsárdal. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert