„Ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Vilhjálmur Birgisson.
Vilhjálmur Birgisson. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Eftir mínum bestu upplýsingum þá eru 99% líkur á að íslenskum stjórnvöldum sé búið að takast að koma í veg fyrir gjaldeyrisöflun upp á 3 milljarða vegna hvalveiða þetta árið.“

Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og formaður Verkalýðsfélags Akraness, í færslu á Facebook.

Hvalur er fallinn á tíma

„Það er þyngra en tárum taki að stjórnvöld (matvælaráðneytið) skuli með klækjum og seinagangi koma í veg fyrir að Hvalur sjái sér fært að fara á hvalveiðar. Matvælaráðuneytið hefur dregið lappirnar frá janúar með að svara Hval hvort leyfið verði gefið út og nú er svo komið að Hvalur er fallinn á tíma enda þarf fyrirtækið að panta aðföng og búnað erlendis frá sem og ráða til sín starfsfólk,“ segir Vilhjálmur ennfremur í færslu sinni.

Vilhjálmur segir það með algjörum ólíkindum að Sjálfstæðisflokkurinn sem kennir sig við að standa vörð um frelsi skuli ekki verja eina af mikilvægustu greinunum í stjórnarskránni sem er atvinnufrelsi fyrirtækja og einstaklinga. Þá segir hann að þögn Framsóknarflokksins hvað varðar hvalveiðar sé einnig ærandi og segist hættur að átta sig á fyrir hvað flokkurinn standi.

Öll fyrirtæki þurfa fyrirsjáanleika

„Að hunsa gjaldeyrisöflun upp á 3 milljarða er með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar en því miður er allt sem bendir til þess að Hvalur sé fallinn á tíma með að fá útgefið leyfi. Öll fyrirtæki þurfa fyrirsjáanleika til að geta gert ráðstafanir og matvælaráðneytið hefur séð til þess að sjá fyrirsjáanleiki er enginn,“ segir Vilhjálmur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert