Edda og Helgi nýir meðeigendur hjá Expectus

Helgi Logason og Edda Valdimarsdóttir Blumenstein hafa verið tekin inn …
Helgi Logason og Edda Valdimarsdóttir Blumenstein hafa verið tekin inn í eigendahóp Expectus. Ljósmynd/Aðsend

Á aðalfundi ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækisins Expectus sem haldinn var í byrjun mars voru þau Edda Valdimarsdóttir Blumenstein og Helgi Logason tekin inn í eigendahóp fyrirtækisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

„Bætast þau við þann öfluga hóp eigenda sem fyrir var en nokkur kynslóðaskipti hafa orðið í hópnum á undanförnum árum. Þannig hafa eldri ráðgjafar vikið og yngra fólk er komið inn í staðinn,“ segir í tilkynningunni.

Nýir meðeigendur fullir tilhlökkunar

„Ég er virkilega stolt og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt að vera komin í eigendahóp Expectus og er full tilhlökkunar að halda áfram að vinna að vexti fyrirtækisins í nýju hlutverki,“ er haft eftir Eddu í tilkynningunni.

Helgi tekur í sama streng: „Ég er fullur tilhlökkunar fyrir nýju hlutverki hjá Expectus. Það eru gríðarlega spennandi tímar fram undan í hvernig fyrirtæki geta nýtt sér gögn og nýjustu tækni og Expectus er í lykilstöðu til að leiða þá þróun.“

Þá kemur fram að Expectus aðstoði mörg af stærstu fyrirtækjum landsins við að nýta upplýsingatækni til að taka gagnadrifnar ákvarðanir sem byggðar eru á rauntímaupplýsingum og ná fyrirtækin þannig mælanlegum og varanlegum árangri í rekstri sínum.

Kona ekki verið meðal eigenda síðan 2018

„Við erum gríðarlega ánægð með að fá þau tvö til liðs við eigendahópinn og hlökkum til að takast á við komandi verkefni með mjög svo öflugt teymi. Það er líka sérlega ánægjulegt að fá unga konu eins og Eddu inn í þennan hóp en kona hefur ekki verið meðal eigenda Expectus síðan 2018,“ er haft eftir Reyni Inga Árnasyni framkvæmdastjóra Expectus.

Expectus var stofnað árið 2009 og hjá fyrirtækinu starfa nú yfir 30 sérfræðingar á sviði stjórnunar, reksturs, tækni og hugbúnaðargerðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert