Aftur grunur um salmonellusmit

Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við …
Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins er unnið að innköllun vörunar, segir í tilkynningu. Ljósmynd/Colourbox

Komið hefur upp grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf.

Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna, að því er segir í tilkynningu frá Matfugli. 

Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerinu 011-24-10-3-64. Þetta er annað númer en kom fram í annarri tilkynningu um meint salmonuellusmit, sem var birt 8. apríl. 

  • Vöruheiti: Ali, Bónus, FK
  • Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
  • Lotunúmer:     011-24-10-3-64 (heill kjúklingur, bringur, lundir, lærakjöt, bitar, kryddlegnar bringur), pökkunardagur 09.04.2024 - 11.04.2024
  • Dreifing:         Bónusverslanir, Krónuverslanir, Fjarðarkaup, Hagkaup 

Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins er unnið að innköllun vörunar, segir í tilkynningu. 

„Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.

Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir áprentuðum leiðbeiningum um eldun kjúklinga, sem finna má á umbúðum, steiki kjúklinginn í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra matvöru.

ATH innköllunin á eingöngu við um kjúkling með þessum tilteknu rekjanleikanúmerum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert