Rannsókn á andláti sex ára drengs lýkur senn

Lögregla segir rannsókn vegna andláts sex ára drengs við Nýbýlaveg …
Lögregla segir rannsókn vegna andláts sex ára drengs við Nýbýlaveg fyrr á árinu vera á lokametrum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn vegna andláts sex ára drengs við Nýbýlaveg í lok janúar klárast bráðlega.

Hún telur það líklegt að rannsókn klárist innan tímamarka núverandi gæsluvarðhaldsúrskurðar.

Gengið út frá því að móðirin hafi ráðið drengnum bana

Grímur Grímsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hafði áður staðfest við fjölmiðla að lögreglan gangi út frá því við rannsókn sína að móðir drengsins hafi ráðið honum bana.

Konan bjó á Nýbýlavegi ásamt tveimur barna sinna. Konan er af erlendum uppruna. Faðir barnanna býr einnig á Íslandi en er búsettur annars staðar. Þau njóta alþjóðlegrar verndar á Íslandi og hafa verið hér búsett í 3-4 ár, að því kom fram í máli Gríms í febrúar.

Ekki hafa nein nákvæm atriði úr rannsókninni komið fram svo sem dánarorsök litla drengsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert