Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn segir að farið verður fram á áframhaldandi …
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn segir að farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald. Samsett mynd

Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir konu sem liggur undir grun um að hafa ráðið sex ára syni sínum bana á Nýbýlavegi í Kópavogi. 

Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar.

Gæsluvarðhald yfir konunni átti að renna út í vikunni. 

Grímur hefur áður sagt í samtali við mbl.is að rannsókn málsins hafi gengið vel og að skýr mynd hefði verið komin af málsatvikum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert