Björgunarsveitir aðstoða mann í sjálfheldu

Maðurinn er ekki slasaður en treysti sér ekki lengra.
Maðurinn er ekki slasaður en treysti sér ekki lengra. Ljósmynd/Jaana-Marja Rotinen

Björgunarsveitir aðstoða nú göngumann sem lenti í sjálfheldu á Móskarðshnjúkum.

Maðurinn er ekki slasaður en treysti sér ekki lengra, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

Björgunarsveitin á Akureyri aðstoðaði gönguskíðamann á syðri Bungum í hádeginu í dag. Maðurinn hefur þegar verið fluttur á slysadeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert