Ferðamálastofa varar nú við því að vasaþjófar séu á sveimi á helstu áfangastöðum landsins og því þurfi ferðaþjónustuaðilar að láta viðskiptavini vita af þessari hættu.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Ferðamálastofu.
„Ferðamálastofa hefur fengið ábendingar um að hópar vasaþjófa séu að herja á helstu áfangastaði landsins. Fréttir hafa borist af ferðamönnum sem hafa tapað mjög háum fjármunum vegna þessa á undanförnum vikum. Viljum við því hvetja ferðaþjónustuaðila til þess að brýna fyrir sínum viðskiptavinum að varast vasaþjófa og ganga þannig frá verðmætum að ekki sé auðvelt að nálgast þau,“ segir í tilkynningunni.
Ferðamálastofa veitir svo nokkur ráð varðandi það hvernig best sé að verjast vasaþjófum. Mikilvægt sé að standa alltaf vörð um verðmæti og vera meðvitaður um umhverfið á öllum tímum. Á það sérstaklega við ef einhver nálgast fólk og reynir að ná athygli þess.