Urður Egilsdóttir
Ákveðnar breytingar hafa þegar verið gerðar á smáforritinu Crew App þar sem flugfreyjur og flugþjónar Icelandair gera jafningjamat á vinnufélögum sínum í starfi eftir hverja vakt.
Þetta kemur fram í skriflegu svari Guðna Sigurðssonar upplýsingafulltrúa Icelandair við fyrirspurn mbl.is en í forritinu er undirhlekkur sem kallast MyMotivation þar sem starfsmenn geta skilað frammistöðumati.
Greint var frá því í morgun að Persónuvernd hefði lokið frumkvæðisathugun sinni á úrvinnslu Icelandair á persónuupplýsingum en stofnunin hóf athugun í kjölfar fréttaflutnings af forritinu í maí.
Persónuvernd telur að vinnsla á persónuupplýsingum með smáforritinu samrýmist ekki meginreglum persónuverndarlaganna um meðalhóf og sanngirni. Jafnframt að Icelandair hafi brotið gegn skyldu sinni til að framkvæma mat á áhrifum umræddrar vinnslu á persónuvernd áður en hún hófst.
Í svari Guðna segir að félagið rýni nú í úrskurð Persónuverndar.
„Í úrskurðinum eru lagðar til ákveðnar breytingar á framkvæmd jafningjamats. Jafningjamatið sem um ræðir er leið til þess að starfsfólk fái sanngjarnt mat á frammistöðu frá jafningjum, en frammistöðumat er samkvæmt kjarasamningum einn af þeim þáttum sem horft er til við ákvörðun um stöðuhækkanir starfsfólks,“ segir í svarinu og bendir Guðni á að þátttaka í frammistöðumatinu sé valkvæð.
Þá segir að ákveðnar breytingar hafi þegar verið gerðar á smáforritinu frá því að Persónuvernd tók málið til meðferðar.
„Icelandair mun nú fara yfir hvort og þá hvaða breytingar þarf að gera á framkvæmd jafningjamatsins til þess að framfylgja úrskurðinum.“