„Flaggskip náttúruverndar“ ei meir?

Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Þórunn Sveinbjarnardóttir. mbl.is/Hákon

Sú var tíðin að Vinstrihreyfingin – grænt framboð gaf sig út fyrir að vera flaggskip náttúruverndar hér á landi og tók það hlutverk alvarlega oftast nær,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, þar sem hún spurði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um rammaáætlun.

Meiri­hluti um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar hef­ur lagt fram nefndarálit um áætl­un um vernd og ork­u­nýt­ingu landsvæða. Héraðsvötn, sem eru í vernd­ar­flokki, verða færð í biðflokk, nái áætl­un­in fram að ganga.

Þórunn sagðist ekki skilja sinnaskipti VG í þessu máli og spurði Katrínu hvað hefði breyst: „Með hvaða rökum styðja Vinstri græn færslu Kjalölduveitu og virkjunarkostanna í Héraðsvötnum úr verndarflokki í biðflokk?

Rammaáætlun lögð fram í fjórða skipti

Katrín benti á að rammaáætlun hefði nú verið lögð fram í fjórða skipti, af fjórða umhverfisráðherranum. „Aldrei hefur umfjöllun verið lokið, meðal annars vegna þeirrar gagnrýni þeirrar sem hér stendur,“ sagði Katrín.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Hákon

Katrín sagði að Alþingi þyrfti að horfast í augu við það að ekki hafi tekist að ná saman um þennan áfanga rammaáætlunar í þau þrjú skipti sem hann hafi verið lagður fram.

„Þetta eru sex ár sem við höfum verið að ræða þetta mál og þetta þarf ekki að koma jafn mikið á óvart og einhverjir háttvirtir þingmenn telja í ljósi þess að í stjórnarsáttmála er sérstaklega talað um að eðlilegt sé að horfa til þess að biðflokkur verði stækkaður þannig að þetta sé gert í minni áföngum,“ sagði Katrín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert