Blönduósbær ræður sveitarstjóra

Sveitarstjórn Blönduósbæjar ásamt nýráðnum bæjarstjóra.
Sveitarstjórn Blönduósbæjar ásamt nýráðnum bæjarstjóra. Ljósmynd/Aðsend

Valdimar O. Hermannsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Blönduósbæjar, en ráðningin var staðfest á fundi sveitarstjórnar í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blönduósbæ.

Valdimar er markaðsfræðingur að mennt en hefur einnig lagt stund á fjölbreytt nám, meðal annars í viðskiptafræðum, stjórnun, markmiðasetningu og leiðtogaþjálfun bæði hérlendis sem og í Evrópu, Japan og Bandaríkjunum.

Hann hefur undanfarin tvö ár starfað sjálfstætt, meðal annars sem verkefnastjóri, nú síðast fyrir Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga. Þá situr hann í ráðgjafarnefnd jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Valdimar O Hermannsson, nýr bæjarstjóri Blönduósbæjar.
Valdimar O Hermannsson, nýr bæjarstjóri Blönduósbæjar. Ljósmynd/Aðsend

Áður sat Valdimar í bæjarstjórn Fjarðabyggðar í tólf ár og þar af var hann í bæjarráði í sex ár. Hann hefur gegnt trúnaðarstörfum á vettvangi sveitarstjórnarstigsins á landsvísu, meðal annars sem formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og sem stjórnarformaður Austurbrúar, Náttúrustofu Austurlands, HAUST og SHÍ.

Valdimar starfaði áður til tólf ára sem rekstrarstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og um tíma einnig sem forstöðumaður innkaupasviðs HSA. Þar áður fékkst Valdimar aðallega við innkaupa- og rekstrarstjórn fyrirtækja.

Valdimar er í sambúð með Vilborgu Elvu Jónsdóttur hjúkrunarfræðingi.

Sveitarstjórn Blönduósbæjar segist fagna ráðningu Valdimars og hlakkar til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem fram undan eru í samstarfi við hann. Valdimar mun hefja störf sem sveitarstjóri Blönduósbæjar 14. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert