Um 30 hafa staðfest þátttöku í hópmálsókn

Mikið tjón varð í eldsvoðanum .
Mikið tjón varð í eldsvoðanum . mbl.is/Kristinn Magnússon

Um þrjátíu manns sem leigðu geymslur í húsnæðinu sem brann í Miðhrauni í byrjun apríl hafa staðfest þátttöku sína í fyrirhugaðri hópmálsókn gegn fyrirtækinu Geymslum. Enn er að fjölga í hópnum. „Þetta er sem sagt komið af stað,“ segir Ágúst Valsson, einn forsvarsmanna hópsins, í samtali við mbl.is. Hann segir að fólkið eigi það sameiginlegt að hafa geymt hluti í húsnæði Geymslna og að hafa orðið fyrir tjóni, bæði fjárhagslegu og tilfinningalegu í eldsvoðanum.

Spurður um kröfu hópsins segir Ágúst að í fyrsta lagi sé hún sú að ábyrgð Geymslna verði viðurkennd og í öðru lagi verði gerð krafa um skaðabætur. 

Lögmaður hópsins er Guðni Á. Haraldsson hjá Löggarði og hvetur Ágúst þá sem hug hafa á að taka þátt í málsókninni til að setja sig í samband við hann. Eins er hægt að fylgjast með gangi mála og fá frekari upplýsingar á heimasíðu hópsins.

Leigutakar sem urðu fyrir tjóni í eldsvoðanum komu fyrst saman til fundar um miðjan maí til að ráða ráðum sínum.

Ágúst segir Guðna lögmann nú stefna á að halda sameiginlegan fund fyrir alla þá sem ætla að taka þátt í málsókninni hinn 6. júní klukkan 20.00.

Upp­tök elds­voðans voru í raf­magn­stengl­um neðan við raf­magn­stöflu á bruna­vegg í miðrými hús­næðis Icewe­ar, samkvæmt bráðbirgðaniður­stöðu rann­sókn­ar lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert