Vilja skoða að hætta með samræmdu prófin

Nemendur við próftöku. Mynd úr safni.
Nemendur við próftöku. Mynd úr safni. mbl.is/Eyþór Árnason

Meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur hefur lagt fram tillögu um að fyrirkomulag samræmdra prófa verði tekið til endurskoðunar. Lagði meirihlutinn í dag fram tillögu þess efnis að sett verði í gang vinna við að „endurmeta gildi og gagnsemi samræmdra prófa í grunnskólum Reykjavíkur og hvort tilefni sé til að leggja samræmdu prófin af og nýta önnur próf og skimanir til að þjóna sambærilegum markmiðum“.

Vill meirihlutinn að leitað verði eftir viðhorfum nemenda, kennara og skólastjórnenda í slíkri vinnu.

Í bókun fulltrúanna um málið segir að menntamálayfirvöld og Menntamálastofnun verði að taka ábyrgð á þeim mistökum sem urðu við framkvæmd samræmdra prófa 9. bekkjar í síðustu viku.  „Ekki er verjandi að leggja á nemendur, kennara og skólastjórnendur það mikla álag sem prófunum fylgir þegar framkvæmdin er svo ófullnægjandi sem raun bar vitni.  Mikilvægt er að taka heiðarlega umræðu um gildi og gagnsemi samræmdra prófa af þessu tilefni og leita eftir viðhorfum nemenda, foreldra kennara og skólastjórnenda í þeirri vinnu,“ segir í ályktuninni. 

Því sé lagt til allir kostir séu skoðaðir, m.a. að leggja af prófin í núverandi mynd en nýta önnur mælitæki til að þjóna markmiðum um að veita upplýsingar um stöðu nemenda. 

Afgreiðslu tillögunnar, sem lögð var fram af fulltrúum Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar og Pírata, frestað til næsta fundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert