Fara yfir gögn úr síma

Artur Jarmoszko.
Artur Jarmoszko.

Ekkert nýtt hefur komið fram um hvar Art­ur Jarmosz­ko gæti verið en lögreglan er að fara yfir gögn úr síma hans. Ekki er hægt að óska eftir því að formleg leit að honum hefjist fyrr en einhverjar upplýsingar koma fram en ekkert hefur spurst til Arturs síðan seint um kvöld 28. febrúar. Þá sást hann á eftirlitsmyndavél í miðborginni. 

Bætt inn klukkan 18:10

Eftirgrennslan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í máli Arturs Jarmoszko hefur ekki enn borið árangur. M.a. hefur verið rætt við fjölskyldu hans og vini til að reyna að varpa ljósi á ferðir og/eða fyrirætlanir Arturs. Á litlu er að byggja enn sem komið er, en málið er tekið föstum tökum hjá lögreglu sem skoðar m.a. tölvu- og símagögn í leit að vísbendingum. Lögreglan fundaði með Landsbjörgu í dag, en ákvörðun um leit að Arturi hefur ekki verið tekin.

Artur Jarmoszko
Artur Jarmoszko

Lög­regla er búin að ræða við meðleigj­anda, fjöl­skyldu og vini Art­urs og virðist eng­inn hafa hug­mynd um hvar hann sé niður­kom­inn. Guðmund­ur Páll seg­ir ekk­ert benda til þess að refsi­vert at­hæfi hafi átt sér stað, né held­ur að Art­ur sé far­inn úr landi.

Art­ur er pólsk­ur en hef­ur verið bú­sett­ur á Íslandi um nokk­urt skeið. Hann er 186 sm hár og með græn augu og stutt dökkt hár. Hann er tal­inn vera klædd­ur í svarta úlpu eða mittisjakka, blá­ar galla­bux­ur og hvíta striga­skó. 

Þeir sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir hans eru beðnir um að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 444-1000 eða í einka­skila­boðum á Face­book, eða senda póst á gudmund­ur.pall@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert