Undirbúningur Kárahnjúkavirkjunar og álvers í Reyðarfirði gengur vel

Egil Myklebust forstjóri Norsk Hydro og Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar …
Egil Myklebust forstjóri Norsk Hydro og Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar koma af fundi ráðherra í Stjórnarráðinu í morgun. mbl.is/RAX

Undirbúningur Noral-verkefnis, þ.e. Kárahnjúkavirkjunar og álvers í Reyðarfirði, gengur vel og framvinda þess er í fullu samræmi við yfirlýsingu þar að lútandi, að því er kom fram á fréttamannafundi sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Egil Myklebust forstjóri Norsk Hydro héldu síðdegis.

Í tilkynningu sem dreift var á fundinum segir að aðilar málsins hviki ekki frá markmiðum sem þar er lýst. Þá segir að þörf sé á frekari athugunum á efnahags- og samfélagsáhrifum framkvæmdanna, einkum varðandi samfélagið á Austurlandi, áður en unnt sé að taka endanlega ákvörðum um framhaldið í byrjun árs 2002. Í tilkynningunni kemur einnig fram að vinnuaflsþörf vegna framkvæmda við virkjun og álver, sem og við framleiðslu áls í Reyðarfirði, næmi að jafnaði 0,9% fólks á vinnumarkaði hér á landi en mest árið 2005, allt að 1,5% af vinnuafli í landinu, þ.e. um 2.300 störf eða ársverk. Einnig segir að fjárfestingar á byggingartíma yrðu að jafnaði 15-20% meiri en ef ekki kæmi til Noral-verkefnisins og allt að 40% meiri þegar umsvifin yrðu hvað mest í framkvæmdum eystra. Aukin verðbólga til skamms tíma vegna framkvæmdanna Áætlað er að samanlagðar fjárfestingar Landsvirkjunar og Reyðaráls verði allt að 30 milljarðar króna á ári á tímabilinu 2003-2008 og að um 40% fjárfestinganna verði af innlendum uppruna. Þá gerir starfshópurinn, sem vann að skýrslu um áhrif Noral-verkefnisins og skipaður var að frumkvæði ráðherra í júní sl., ráð fyrir að halli á viðskiptum Íslendinga við útlönd aukist og að hætta sé á aukinni verðbólgu til skamms tíma vegna áhrifa framkvæmdanna. Til lengri tíma litið muni útflutningur álversins hins vegar draga úr viðskiptahalla og auka þjóðartekjur, segir einnig í fréttatilkynningunni um helstu niðurstöður skýrslunnar. Þá er talið að árin 2002-2009 myndi þjóðarframleiðsla vera að jafnaði um 2% hærri og landsframleiðsla um 2,5% hærri vegna Noral-verkefnisins en án þess að óbreyttu. „Aukin umsvif í atvinnulífinu gætu stuðlað að því að auka rekstrarafgang ríkissjóðs um sem svarar til allt að hálfu prósenti af landsframleiðslu." Landsframleiðsla aukist varanlega um allt að 1,5% „Áætlað er að Noral-verkefnið auki þjóðarframleiðslu vranlega um 0,4-1,3% og landsframleiðslu varanlega um 0,8-1,5%. Halli á viðskiptum Íslendinga við útlönd gæti aukist á framkvæmdatímanum um 2,5% af landsframleiðslu vegna mikil innflutnings fjárfestingarvara. Áætlað er að skuldir þjóðarbúsins yrðu 10-12% meiri í lok framkvæmdatímabilsins en er ekki yrði ráðist í Noral-verkefnið. Aukin eftirspurn á framkvæmdatímanum gæti aukið verðbólgu um 1,5-2% prósentustig. Starfshópurinn telur að beinar mótvægisaðgerðir í ríkisfjármálum komi til álita gegn þensluáhrifum á framkvæmdatímanum," segir í fréttatilkynningunni. Um 1.000 ný störf skapist á Mið-Austurlandi Starfshópurinn telur álver í Reyðarfirði muni hafa margvísleg jákvæð áhrif á Mið-Austurlandi þegar til lengri tíma er litið. Álverið myndi auka fjölbreytni í atvinnulífi en t.a.m. sé krafist háskólamenntunar í 10-15% starfanna. Um 1.000 ný störf yrðu til á Mið-Austurlandi í álverinu og í tengslum við starfsemi þess. Íbúum Mið-Austurlands gæti fjölgað um 2.000-2.500 manns vegna starfsemi álvers í Reyðarfirði. Þannig gætu íbúuar þar verið orðnir 9.000-10.000 talsins árið 2010 í 7.000-7.500 án álvers eða annarrar uppbyggingar atvinnustarfsemi. Starfshópur telur mörg og stór verkefni blasa við sveitarstjórnum vegna röskunar sem óhjákvæmilega fylgi framkvæmdum af þessum toga. Aukin samkeppni um vinnuafl komi fyrst og fremst við starfsgreinar þar sem laun séu lág og vinna einhæf eða stopul," kemur fram í tilkynningunni. Menntamálaráðuneyti aðstoði framhaldsskóla á Austurlandi vegna nýrra krafna um menntun Hópurinn fjallar sérstaklega um ýmsar þær ráðstafanir sem hann telur nauðsynlegar, verði ákveðið að ráðast í framkvæmdir við virkjun og álver á Austurlandi. „Mælt er með því að menntamálaráðuneytið og Reyðarál aðstoði Verkmenntaskólann í Neskaupstað og Menntaskólann á Egilsstöðum við að mæta nýjum kröfum um menntun þar eystra vegna starfa í álverinu og í tengslum við það. Fræðslunet Austurlands er einnig nefnt í þessu sambandi. Lagt er til að aðstandendur verkefnisins ræði við Heilbrigðisstofnun Austurlands um nauðsunlega heilbrigðis- og neyðarþjónustu sem þarf að vera til staðar þegar/ef framvkæmdir hefjast og álver tekur til starfa eystra. Bent er á að verkefnið kalli á tilteknar samgöngubætur á Austurlandi. Jarðgöng séu fyrirhuguð á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar og nauðsynlegt sé líka að lagfæra veginn milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur. Þá þurfi að endurbæta veginn milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar og leggja veg fram hjá þorpinu við Reyðarfjörð til að ekki þurfi að aka þar í gegn. Nefnt er að þörf sé á að minnsta kosti 500 nýjum íbúðarhúsum á svæðinu á árunum 2003-2010 auk verksmiðjubygginga og tilheyrandi skrifstofuhúsnæðis. Bent er á að Fjarðabyggð þurfi að undirbúa nýtt skipulag sem taki til álversins og allrar tengdrar starfsemi, sem og nýrrar íbúaðarbyggðar og iðnaðarsvæða. Margt fleira er nefnt, m.a. að sveitarstjórnir búi sig undir að mæta íbúafjölgun með tilheyrandi kröfum um skóla, dagvistir barna, ýmsa félagslega þjónustu og fleira," segir loks í fréttatilkynningunni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert